Grillaður lax með karamellusósu að víetnömskum hætti

Þessi réttur er algjört æði.
Þessi réttur er algjört æði. mbl.is/Food52

Þessi upp­skrift er sér­lega spenn­andi þar sem hún bland­ar sam­an ólík­um áhrif­um á snilld­ar­hátt. Hægt er að skipta út laxi fyr­ir ann­an fisk ef þið viljið og þá kem­ur í raun hvaða fisk­ur sem er til greina en þorks­hnakk­ar væru sér­lega álit­leg­ur kost­ur.

Grillaður lax með karamellusósu að víetnömskum hætti

Vista Prenta

Grillaður lax með kara­mellusósu að víet­nömsk­um hætti

Handa fjór­um 

  • 800 g laxaflak, skipt í 4 bita
  • 1 msk ólívu­olía
  • salt og nýmalaður pip­ar
  • 3 msk sojasósa
  • 3 msk fiskisósa
  • ½ bolli púður­syk­ur
  • 1 tsk rifið engi­fer
  • safi úr einni límónu
  • soðin hrís­grjón
  • lófa­fylli ferskt kórí­and­er, saxað
  • 3 - 4 vor­lauk­ar, sneidd­ir
  • 1 rauður chilípip­ar, saxaður smátt, kjarn­ar fjar­lægðir
  • nokkr­ir límónu­bát­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 220°C. Leggið laxa­bit­ana á bök­un­ar­papp­ír eða álp­app­ír, snúið roðhliðinni niður, og penslið með ol­í­unni, stráið salti og pip­ar yfir. Grillið í ofn­in­um í 11 – 12 mín­út­ur.
  2. Hitið sojasósu, fiskisósu, púður­syk­ur, engi­fer og límónusafa við meðal­hita á pönnu. Hrærið í þar til syk­ur­inn hef­ur bráðnað og bland­an er orðin síróps­kennd.
  3. Berið lax­inn fram á hrís­grjóna­beði. Dreifið sós­unni yfir ásamt kórí­and­er, vor­lauk, chilí og límónu­bát­um.     

Upp­skrifti: Food52

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert