Svona gerir þú bleika kleinuhringi

Það væri ekki ónýtt að maula þessa með kaffinu.
Það væri ekki ónýtt að maula þessa með kaffinu. mbl.is/AwwSam

Sam Us­hiro er hönnuður, stílisti og kleinu­hringja-unn­andi sem er lit­rík og úrræðagóð í meira lagi. Við rák­umst fyrst á Sam á brölti um sam­fé­lags­miðil­inn in­sta­gram og kol­féll­um fyr­ir henni, en hún er haf­sjór af skemmti­leg­um fönd­ur- og DIY-hug­mynd­um auk þess að vera ansi lunk­in við bakst­ur. Lífs- og litagleði Sam er bráðsmit­andi en vill hún meina að hlut­irn­ir séu betri á bragðið ef þeir eru bleik­ir. Hún vippaði því í þessa upp­skrift að bleik­um kleinu­hringj­um, sem við fáum náðarsam­leg­ast að deila hérna með ykk­ur.

Svona gerir þú bleika kleinuhringi

Vista Prenta

Bleik­ir kleinu­hring­ir

Fyr­ir kleinu­hring­ina:

  • 1 og ¼ bolli hveiti
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. mat­ar­sódi
  • 1 og ½ tsk. kakó­duft
  • ¾ bolli syk­ur
  • ½ bolli olía
  • ½ bolli mjólk
  • 1 egg
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • ½ tsk. edik
  • bleik­ur mat­ar­lit­ur

Fyr­ir glassúr­inn

  • 2 boll­ar flór­syk­ur
  • ¼ bolli mjólk

Aðferð

  1. Hitið ofn­inn í 180 gráður. Smyrjið feiti í kleinu­hringja­mótið.

  2. Blandið sam­an hveiti, salti, mat­ar­sóda, kakó og salti í stóra skál. Takið fram aðra skál og blandið þar sam­an olíu, mjólk, eggi, vanillu­drop­um og ed­iki. Bætið því næst þur­refn­un­um úr fyrri skál­inni var­lega sam­an við blaut­metið í seinni skál­inni. Þetta skal gera í litl­um skömmt­um og hræra vel á milli.

  3. Þegar deigið er hrært til fulls, bætið þá mat­ar­lit sam­an við þar til bland­an er orðin vel bleik. Þá er best að setja deigið í sprautu­poka og sprauta í kleinu­hringja­mótið og fylla hvert hólf upp til hálfs.

  4. Bakið í 9-12 mín­út­ur eða þar til brún­ir kleinu­hringj­anna byrja að brún­ast á lit. Takið þá kleinu­hringja­mótið úr ofn­in­um og leyfið því að kólna vel.

  5. Blandið sam­an flór­sykri og mjólk í skál þar til bland­an er slétt og laus við alla kekki. Þegar kleinu­hring­irn­ir hafa kólnað al­ger­lega má dýfa hverj­um og ein­um ofan í glassúr­inn og leggja svo á grind til að leyfa glassúrn­um að stífna. 
Sam Ushiro vill meina að bleikir kleinuhringir bragðist betur en …
Sam Us­hiro vill meina að bleik­ir kleinu­hring­ir bragðist bet­ur en aðrir. mbl.is/​Aww­Sam

A post shared by Sam Us­hiro (@aww.sam) on Apr 27, 2018 at 2:13pm PDT


 

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert