Kjúklingapasta á einfalda mátann

Pastað er borið fram á pönnunni.
Pastað er borið fram á pönnunni. Ljósmynd: Delish - Ethan Calabrese

Nú fá marg­ir vatn í munn­inn við það eitt að ímynda sér hversu dá­sam­lega bragðgóður þessi rétt­ur er. Ein­fald­ur, góður og merki­lega fljót­leg­ur og huggu­leg­ur. 

Það er ná­kvæm­lega ekk­ert að þessu...

Kjúklingapasta á einfalda mátann

Vista Prenta

Kjúk­linga Al­fredo á ein­falda mát­ann

  • 2 msk extra virg­in ólífu olía
  • 2 kjúk­linga­bring­ur - takið skinnið af
  • sjáv­ar­salt fersk­ur svart­ur pip­ar
  • 360 ml mjólk
  • 360 ml kjúk­linga­soð
  • 2 hvít­lauks­geir­ar, fínt saxaðir
  • 240 g fetucc­ini
  • 120 ml rjómi
  • 1 bolli nýrif­inn par­mes­an
  • söxuð stein­selja - til skrauts

AÐFERÐ:

Takið stóra pönnu eða steypu­járn­spott og hitið ol­í­una. Setjið kjúk­ling­inn á pönn­unna (eða pott­inn) og kryddið með salti og pip­ar og steikið uns gull­in­brúnt. Miðað er við að steikja kjúk­ling­inn í átta mín­út­ur á hvorri hlið. Takið af pönn­unni og látið hvíla áður en þið skerið í sneiðar.

Bætið mjólk, kjúk­linga­soði og hvít­lauk á pönn­una. Kryddið með salti og pip­ar og látið suðuna koma upp. Bætið past­anu við og hrærið reglu­lega í í þrjár mín­út­ur eða svo. Eldið í sirka átta mín­út­ur til viðbót­ar.

Bætið rjóma og par­mes­an ostið og blandið vel sam­an. Látið malla í tvær mín­út­ur eða þar til sós­an er far­in að þykkna. Kryddið aft­ur með salti og pip­ar.

Takið pönn­una/​pott­inn af hell­unni og hrærið niður­skorna kjúlk­ing­un­um við. Berið strax fram með stein­selju.

Upp­skrift: Del­ish

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert