Mögnuð sjávarréttasúpa sem er stútfull af góðgæti

Sjávarréttasúpa sem slær í gegn.
Sjávarréttasúpa sem slær í gegn. Ljósmynd: Food52 - Mark Weinberg

Gald­ur­inn við þessa dá­semd­ar upp­skrift hér að neðan er chorizo pyls­an. Bæði gef­ur hún skemmti­legt bragð sem kall­ast á við hóf­stemmd­ara bragð sjáv­ar­fangs­ins en svo gef­ur hún líka frá sér lit sem fer súp­unni ákaf­lega vel. 

Það er í raun­inni al­veg sama hvaða sjáv­ar­fang er notað í upp­rskrift­ina svo lengi sem það er hvítt. Hér má því al­veg gefa ímynd­un­ar­afl­inu laus­an taum­inn. Njóttu vel því fátt er betra á fal­leg­um degi en dá­sam­lega vel heppnuð sjáv­ar­rétt­asúpa.

Mögnuð sjávarréttasúpa sem er stútfull af góðgæti

Vista Prenta

Mögnuð sjáv­ar­rétt­asúpa sem er stút­full af góðgæti

(handa fjór­um)

  • 1 tsk smjör
  • 1 msk ólífu­olía
  • 60 g spænsk kryddpylsa
  • 1 lauk­ur, smátt saxaður
  • 1 tsk reykt paprika
  • 1 blað lár­viðarlauf
  • 2 grein­ar ferskt timj­an
  • 1 stór kart­afla, skor­in í litla ten­inga
  • 3-3 ½ bolli sjáv­ar­fang
  • 1 tsk salt
  • ½ tsk nýmalaður svart­ur pip­ar
  • 1/​2 bolli smátt skorið chilí roa­sted red pep­p­ers (ekki al­veg viss - spyrja kokk­inn)
  • ½ kg fisk­ur (t.d. þorsk­flak, ýsa, lúða)
  • ½ - 1 bolli rjómi
  • 2 tsk graslauk­ur (til skrauts)

AÐFERÐ: 

  1. Hitið smjör og olíu á stórri pönnu, steikið pyls­una og eldið þar til hún er orðin stökk. Færið hana yfir á eld­húspapp­ír og látið fit­una renna ef henni.
  2. Látið saxaðan lauk­inn mýkj­ast við lág­an hita í olíu á pönnu. Bætið út í papriku, lár­viðarlaufi og kart­öfl­um. Bindið timj­an­grein­arn­ar sam­an, látið út í og festið end­ann á band­inu við pönnu­skaftið. Gæði þess að vökvi sé næg­ur til að hylja karflu­bit­ana. Lækkið hit­ann og látið malla þar til kart­öfl­urn­ar eru mjúk­ar, u.þ.b. 10-15 mín. Saltið og piprið eft­ir smekk og bætið smátt skornu chilí út í.
  3. Leggið fiskiflakið í heilu lagi ofan á og látið sjóða þar til auðvelt er að skera fisk­inn í bita (4-6 mín). Þegar fisk­ur­inn er eldaður má fjar­lægja lár­viðarlaufið og timj­an­grein­arn­ar og bæta út í rjóma eft­ir smekk.
  4. Ausið rétt­in­um í skál­ar og dreifið yfir pylsu­bit­un­um og söxuðum graslauk.

Upp­skrift: Food52

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert