Lúxús lambarif með rabbabaragljáa

Þessi lambarif eru eiginlega of girnileg.
Þessi lambarif eru eiginlega of girnileg. Ljósmynd: Bon Appetit/Christopher Testani

Þessi upp­skrift er klár­lega dýr­ari týp­an enda gef­ur hér að líta eina al-skemmti­leg­ustu upp­skrfit sem sést hef­ur á Mat­ar­vefn­um lengi. Að öðrum upp­skrift­um ólöstuðum þá erum við að elska að hér komi sam­an tvennt það sem ein­kenn­ir Ísland: Lambið og rabba­bar­inn - sem er stór­lega van­metið hrá­efni.

Auðvitað er hægt að skipta lambarifj­un­um (sem er erfitt að fá) fyr­ir ann­ars­kon­ar rif EÐA nota lambakótilett­ur eða eitt­hvað annað lamba­kjöt. Bragðið er jafn stór­kost­legt og við hvetj­um ykk­ur til að prófa. Kannski ekki mikið af rabba­bara í augna­blik­inu en það stytt­ist í það...

Lúxús lambarif með rabba­baragljáa

Vista Prenta

Lúxús lambarif með rabba­baragljáa

  • 1 msk svört pip­ar­korn
  • 1 msk hvít pip­ar­korn
  • 1 msk kórí­and­erfræ
  • 1 msk fenn­el­fræ
  • Um það bil kíló af lambarifj­um.
  • Sjáv­ar­salt
  • 120 ml hlyns­íróp
  • 60 ml bal­sa­mik edik

SAL­AT OG SAM­SETN­ING

  • ½ tsk fínt rif­inn sítr­ónu­börk­ur
  • 1½ tsk fersk­ur sítr­ónusafi
  • ¾ tsk hun­ang
  • ¾ tsk Dijon sinn­ep
  • 2 msk ólífu­olía
  • Sjáv­ar­salt og fersk­ur pip­ar
  • Ra­dís­ur, skorn­ar í þunn­ar sneiðar
  • 2 rabba­barastilk­ar, skorn­ir í þunn­ar sneiðar
  • 1 skallott­lauk­ur, skor­inn í þunn­ar sneðar
  • 1 bolli mintu­lauf

AÐFERÐ

  1. Hitið ofn­inn í 150 gráður. Ristið svört og hvít pip­ar­korn á þurri pönnu ásamt kórí­and­er og fenn­el fræj­um á miðlungs hita. Hristið pönn­una reglu­lega, þar fræ­in eru orðin gyllt og far­in að ilma vel eða í þrjár mín­út­ur. Látið þau kólna og malið þau síðan.
  2. Kryddið lambið vel með salti og nuddið síðan krydd­blönd­unni vel á. Látið beinið liggja niður og setjið á ofn­grind. Gott er að hafa smjörpapp­ír á grind­inni (best er að hafa ofnskúffu með grind yfir). Eldið rif­in þar til þau hafa brún­ast vel og eru orðin vel mjúk og megnið af fit­unni hef­ur bráðnað, eða í um 3 ½ tíma.
  3. Á meðan rif­in eru að eld­ast setjið rabba­bara, hlyns­íróp, edik og 120 ml af vatni í pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hit­ann og látið malla þar til vökvinn hef­ur soðið niður um helm­ing eða í 20 mín­út­ur eða svo. Sigtið í hitaþolna mæli­könnu.
  4. Takið rif­in úr ofn­in­um og hækkið hit­ann í 220 gráður. Liftið rifj­un­um var­lega á disk og fjar­lægið all­an vökva sem runnið hef­ur af. Setjið rif­in á grind­ina aft­ur og skerið á milli beina. Setjið vel af rabba­barag­láa yfir rif­in en passið að allt kryddið renni ekki af.
  5. Setjjið rif­in í ofn­inn og grillið í 15-20 mín­út­ur. Hellið reglu­lega gljáa yfir rif­in þar til þau eru orðin vel klístruð og glans­andi.
SAL­AT OG SAM­SETN­ING
  1. Pískið sam­an sítr­ónu­berki, sítr­ónusafa, hun­angi og sinn­epi í stóra skál. Bætið ol­í­unni ró­lega sam­an við meðan þið pískið hressi­lega. Kryddið með salti og pip­ar.
  2. Bætið ra­dís­um, rabba­bara, skallott­lauk og mintu í skál og hellið sítr­ónu­leg­in­um yfir. Smakkið til og kryddið með salti og pip­ar.
  3. Berið rif­in fram og sáldrið af­gang­in­um af rabba­baragljá­an­um yfir þau og hafið ra­dísu-rabba­bara­sal­atið með.

Upp­skrift: Bon App­e­tit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert