Sjúklegt humarsalat úr Hafnarfirði

Humarsalatið á Krydd.
Humarsalatið á Krydd. Ásdís Ásgeirsdóttir

Það er fátt sem litar til­ver­una meira en gott humarsal­at. Þetta er ein af þess­um staðreynd­um sem þarf ekk­ert að deila um og all­ir eru sam­mála (eða flest­ir). Við erum al­gjör­lega að elska þessa upp­skrift enda kenn­ir ým­issa grasa; allt frá app­el­sín­um upp í soya og ses­am.

Skemmti­leg bragðsam­setn­ing sem hent­ar við hvaða tæki­færi sem er en sal­atið kem­ur úr smiðju veitngastaðar­ins Krydd sem opnaði á dög­un­um í Hafn­ar­hús­inu í Hafnar­f­irði. 

Sjúklegt humarsalat úr Hafnarfirði

Vista Prenta

Sjúk­legt humarsal­at úr Hafnar­f­irði 

Fyr­ir 4

  • 25 humar­hal­ar
  • 800 g blandað sal­at
  • 1 app­el­sína
  • 50 g sojasósa
  • 1 msk. dijon-sinn­ep
  • pek­an­hnet­ur, saltaðar
  • chilli-maj­ónes (fæst í búðum)
  • 3-4 msk. ristuð ses­am­fræ
AÐFERÐ:
  1. Steikið hum­ar á pönnu í 2 mín­út­ur á hvorri hlið, eða þar til hann er eldaður í gegn, gott er að setja ör­lít­inn hvít­lauk á pönn­una til að gefa smá hvít­lauk­skeim.
  2. Blandið sam­an sojasósu og dijon-sinn­epi og notið sem dress­ingu á sal­atið, en at­hugið að nota ekki alla dress­ing­una strax því að hún er mjög sölt þannig að betra er að setja lítið á sal­atið og bæta svo frek­ar við.
  3. App­el­sín­an er skræld og skor­in í bita.
  4. Sal­atið er sett í skál og blandað sam­an við chilli-maj­o­nesið, en ekki má hræra of harka­lega því þá get­ur sal­atið mar­ist. Fyr­ir hvern skammt af sal­ati er notuð ein mat­skeið af chilli-maj­ónes­inu. Setjið svo humar­hal­ana ofan á sal­atið og því næst app­el­sínu­bit­ana, pek­an­hnet­urn­ar og ör­litla soja­dress­ingu. Að lok­um er stráð yfir ristuðum ses­am­fræj­um.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert