Brakandi fersk og gómsæt bleikja

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Þessi upp­skrift er sér­lega fersk og góð enda ættuð úr Hafnar­f­irðinum - nán­ar til­tekið á veit­ingastaðnum Krydd í Hafn­ar­hús­inu. Það er fátt sem topp­ar jarðskokkamauk með bleikju og heilt yfir er þetta fyr­ir­taks­rétt­ur sem hægt er að stekja bæði á pönnu eða grilla á grilli. 

Brakandi fersk og gómsæt bleikja

Vista Prenta

Brak­andi fersk og góm­sæt bleikja

Fyr­ir 4

  • 1 kg bleikju­flök
  • smá salt og pip­ar

Kryddið með salti og pip­ar og steikið flök­in á pönnu úr olífu­olíu og setjið svo smjörklípu á pönn­una í rest­ina.

Jarðskokkamauk

  • 200 g jarðskokk­ar
  • 50 g græn epli
  • 50 ml rjómi
  • safi af sítr­ónu
  • salt

AÐFERÐ:

Skrælið jarðskokk­ana og epl­in og skerið í kubba. Setjið þau í pott og sjóðið ró­lega með rjóm­an­um þar til jarðskokk­arn­ir eru eldaðir í gegn. Setjið allt í bland­ara og smakkað til með sítr­ónusafa og salti.

Annað meðlæti

  • 600 g smælki
  • 300 g gul­ræt­ur
  • 300 g sell­e­rírót

AÐFERÐ:

Allt soðið eða bakað í ofni þar til græn­metið er orðið mjúkt.

Sósa fyr­ir bleikju

  • 2 saxaðir skallott­lauk­ar
  • 1 hvít­lauksrif, rifið
  • 1 dl hvít­vín
  • 400 ml rjómi
  • 50 g smjör
  • ferskt dill

AÐFERÐ:

Steikið lauk og hvít­lauk þar til lauk­ur­inn er orðinn mjúk­ur. Hellið þá hvít­víni út í og sjóðið niður um helm­ing. Að því loknu er rjóm­an­um bætt við. Sós­an er þá soðin við væg­an hita og að lok­um er smjöri og dilli bætt við.

Þegar rétt­ur­inn er bor­inn fram er sós­an hituð og græn­metið sett út í sós­una.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert