Kryddlegnar lambakótilettur með hvítlauks- og jógúrtdressingu

mbl.is/Bon Appetit

Kótilett­ur eiga alltaf vel við og þessi upp­skrfit er frem­ur frá­bær og sn­arein­föld. Að auki flokk­ast hún klár­lega sem „gour­met“ enda kem­ur hún úr smiðju Bon App­e­tit sem þykir nú með vandaðri mat­reiðslupés­um sem gef­inn er út. 

Kryddlegnar lambakótilettur með hvítlauks- og jógúrtdressingu

Vista Prenta

Kryddlegn­ar lambakótilett­ur með hvít­lauks- og jóg­úr­t­dress­ingu

  • 2 hvít­lauksrif
  • 1 ½ bolli grískt jóg­úrt
  • 1 sítr­óna
  • sjáv­ar­salt
  • nýmalaður svart­ur pip­ar
  • 2 tsk kumm­in
  • 1 tsk kórí­and­er
  • ¼ tsk túr­merik
  • ¼ tsk allra­handa
  • 8 lambakótilett­ur
  • 2 msk góð olía

AÐFERÐ

  1. Pressið hvít­lauk­inn og setjið í skál með gríska jóg­úrt­inu
  2. Skerið sítr­ón­una í tvennt og pressið saf­ann úr öðrum helm­ingn­um sam­an við (fjar­lægið stein­ana), kryddið með salti og pip­ar.
  3. Takið ½ bolla af jóg­úrt­inu frá og geymið.
  4. Pískið krydd­inu sam­an við jóg­úr­tið sem eft­ir er, makið blönd­unni vel á báðar hliðar á kótilett­un­um og látið standa í 30 mín­út­ur. Má jafn­vel geyma þær í kæli í 12 tíma.
  5. Hitið 1 msk af olíu á pönnu.
  6. Strjúkið megnið af jóg­úrt­inu af kótilett­un­um og steikið þær við meðal­hita þar til þær eru fal­lega brúnaðar, u.þ.b. 3 mín á hvorri hlið. Þægi­legt að nota tvær pönn­ur, 1 msk af olíu fer þá á hina pönn­una.
  7. Berið kótilett­urn­ar fram með jóg­úrt­inu sem tekið var frá í byrj­un.
mbl.is/​Bon App­e­tit
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert