Lambalæri eins og þú hefur aldrei bragðað það áður

Fátt er betra en gott lambalæri á sunnudegi sem þessum.
Fátt er betra en gott lambalæri á sunnudegi sem þessum. mbl.is/Bon Appetit

Það er fátt meira viðeig­andi á sunnu­degi en gott lamba­læri sem mall­ar í ofn­in­um á meðan fjöl­skyldumeðlim­ir býsn­ast yfir veðrinu. Þetta snýst nefni­lega allt um stemn­ing­una og góður mat­ur get­ur miklu breytt eins og við vit­um öll. 

Þessi út­færsla á lamba­læri er eins langt frá því að vera hefðbund­in og hugs­ast get­ur. Hér erum við með fenn­el­fræ og svo græna sósu eða „salsa ver­de" (sem þýðir græn sósa á spænsku) sem er al­gjör­lega geggjuð. Nú ef það er eng­in stemn­ing fyr­ir sum­ar­legri sósu má skella í góða sveppasósu eins og þessa hér:

Lambalæri eins og þú hefur aldrei bragðað það áður

Vista Prenta

Fenn­el­kryddað lamba­læri með „salsa ver­de“

  • Úrbeinað lamba­læri (u.þ.b. 2 kg)
  • sjáv­ar­salt og nýmalaður pip­ar
  • 3 msk fenn­el­fræ
  • 4 tsk muld­ar rauðpipar­flög­ur
  • 4 hvít­lauksrif, pressuð
  • 3 msk + ¼ bolli ólífu­olía
  • 1 kg (u.þ.b.) litl­ar gul­ræt­ur 

Salsa ver­de

  • ½ bolli fínt söxuð stein­selja
  • ¼ bolli fínt saxaður graslauk­ur
  • 2 msk (eða meira) fersk­ur sítr­ónusafi
  • 2 msk ólífu­olía
  • sjáv­ar­salt, nýmalaður pip­ar

AÐFERÐ:

Lærið þarf að vera upp­rúllað og bundið sam­an. Nuddið það með salti og pip­ar og látið standa við eld­hús­hita meðan kryddið er malað og hvít­lauk­ur­inn pressaður. Látið í skál og hrærið 3 msk ólífu­olíu sam­an við. Nuddið blönd­unni vel á lærið.

Hitið ofn­inn í 150°C. Hitið ¼ bolla ólífu­olíu á stórri steikarpönnu. Þegar olí­an er meðal­heit er lærið steikt á pönn­unni þar til það er orðið gull­in­brúnt all­an hring­inn, 3-5 mín á hverri hlið. Hellið aukafitu í skál og geymið. Hit­inn þarf að vera hæfi­leg­ur svo fit­an renni úr kjöt­inu og það brún­ist ekki of mikið. Ef olí­an dökkn­ar eða brenn­ur gæti þurft að hella henni af og bæta við nýrri olíu.

Hreinsið gul­ræt­urn­ar, saxið kálið og setjið í skál. Þurrkið gul­ræt­urn­ar og raðið þeim í kring­um lærið í ofnskúffu eða bakka. Hellið fit­unni sem rann úr kjöt­inu yfir gul­ræt­urn­ar, einnig fit­unni af pönn­unni (munið að skrapa botn­inn til að fá sem mest bragð). Stráið yfir salti og pip­ar.

Steikið kjötið og gul­ræt­urn­ar í ofn­in­um. Þegar kjöt­hita­mæl­ir sýn­ir 60°C er kjötið „medi­um rare“, eft­ir u.þ.b. 75-90 mín. Takið lærið úr ofn­in­um, breiðið yfir það álp­app­ir og látið standa í 20 mín. Ekki slökkva á ofn­in­um.

Meðan kjötið bíður eru gul­ræt­urn­ar sett­ar aft­ur í ofn­inn og steikt­ar í u.þ.b. 5 mín. Áður er mestu fit­unni hellt af þeim.

Salsa ver­de

Saxið kálið af gul­rót­un­um (skiljið eft­ir smá enda), ætti að vera um ½ bolli. Látið í skál ásamt öðrum inni­halds­efn­um sós­unn­ar, bætið við salti, pip­ar og sítr­ónusafa eft­ir smekk.

Fjar­lægið bandið af kjöt­inu, skerið það í hæfi­lega þykk­ar sneiðar og berið fram með gul­rót­un­um og grænu góðu sós­unni.

Upp­skrift: Bon App­e­tit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert