Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu

mbl.is/Júlía Magnúsdóttir

Fersk­ur fisk­ur er eina vitið á degi sem þess­um þar sem við gír­um okk­ur upp fyr­ir kom­andi viku og miss­um ekki von­ina um veður­blíðu þó að spá­in sé hreint út sagt arfaslæm. 

Það er meist­ari Júlía Magnús­dótt­ir, heil­su­markþjálfi hjá Lifðu til fulls, sem á þessa upp­skrift en hún mat­reiddi þenn­an rétt í mat­ar­boði á dög­un­um og var svo ánægð með út­kom­una að við urðum að birta þessa upp­skrift til að gleðja lesnd­ur vora!

Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu

Vista Prenta

Grillaður þorsk­ur með granateplasalsa og hvít­laukssósu

  • 1 kúr­bít­ur, skor­inn langs­um
  • salt og pip­ar
  • olía
  • 1 þorsk­flak (ca. 600 gr.)

Mar­in­er­ing á fisk­inn

  • hand­fylli fersk stein­selja
  • stein­seljukrydd
  • smá lauk­duft
  • ör­lítið ferskt chilli (einnig má nota chilli-krydd)
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • 1-2 msk. ólífu­olía (fer eft­ir stærð á fiski)

Granateplasalsa

  • 1 bolli fersk­ir kirsu­berjatóm­at­ar
  • ½ bolli granatepli
  • ¼ rauðlauk­ur, fínt saxaður
  • ½ lime, kreist
  • hand­fylli fersk stein­selja (ca. ¼ bolli)

Ein­föld hvít­lauks-grillsósa

  • 4 msk. veg­an maj­ónes
  • 1 msk. sítr­ónusafi
  • hand­fylli fersk­ur vor­lauk­ur eða graslauk­ur, smátt saxaður
  • 1 tsk. hlyns­íróp eða hun­ang (einnig má nota steviu)
  • 1 hvít­lauksrif, pressað, eða hvít­lauks­duft
  • 8 klíp­ur svart­ur pip­ar (eða meira eft­ir smekk)
  • salt eft­ir smekk

AÐFERÐ:

1. Hitið grillið.

2. Skerið kúr­bít langs­um með osta­skera og raðið á disk. Kúr­bít­ur­inn ætti að vera hæfi­lega þykk­ur enda ef hann er of þunn­ur er erfiðara að grilla hann.  Penslið kúr­bít­inn og kryddið með salti og pip­ar.

3. Útbúið næst mar­in­er­ingu fyr­ir fisk­inn með því að hræra öllu sam­an í skál. Leggið þorsk­flakið á grill­bakka eða á álp­app­ír og penslið fisk­inn með kryddol­í­unni.

4. Nú má grilla fisk­inn og kúr­bítsneiðarn­ar. Raðið kúr­bítsneiðum á grillið, þær taka ca. 2 mín. á hvorri hlið en fer eft­ir hita­stigi á grilli. Grillið fisk­inn í 10-15 mín. eða þar til hann er eldaður í gegn.

5. Á meðan má und­ir­búa granateplasalsa. Opnið granatepli og fjar­lægið kjarn­ana til að nota í salsað. Skerið kirsu­berjatóm­ata gróf­lega, saxið rauðlauk­inn og stein­selj­una og sam­einið í skál. Kreistið lime-safa yfir og kryddið með chilli, salti og pip­ar eft­ir smekk.

6. Setjið þá hrá­efni hvít­lauks­grillsós­unn­ar í skál og hrærið sam­an með gafli.

7. Berið fram með fersku sal­ati og njótið.

mbl.is/​Júlía Magnús­dótt­ir
mbl.is/​Júlía Magnús­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert