Linsubaunapottréttur fyrir rigningardaga

Þessi linsubaunaréttur fer afar vel með hrísgrjónum. Hann geymist einnig …
Þessi linsubaunaréttur fer afar vel með hrísgrjónum. Hann geymist einnig vel í frysti svo gott er að eiga og grípa til á rigningardögum. mbl.is/eatwell101

Við verðum bara að horf­ast í augu við þá staðreynd að ís­lenskt sum­ar er ekki bara sól og sæla. Fyr­ir þá daga sem rign­ing­in lem­ur rúðurn­ar er gott að eiga ljúf­fenga upp­skrift að hugg­un­ar­fæði sem verm­ir og ylj­ar. Við mæl­um sér­stak­lega með því að stinga upp í sig skeið af þess­um mein­holla og ljúf­fenga linsu­bauna­rétti til að þagga niður í ekka­sog­um yfir sól­ar­leysi og súld. En þessi pot­trétt­ur er afar ein­fald­ur í und­ir­bún­ingi, ódýr og stút­full­ur af góðri nær­ingu.

Linsubaunapottréttur fyrir rigningardaga

Vista Prenta

Linsu­bauna­rétt­ur fyr­ir rign­ing­ar­daga

  • 2 msk. ólífu­olía
  • 1 stór lauk­ur
  • 3-4 hvít­lauks­geir­ar
  • 400 gr grasker
  • 1 stór sæt kart­afla
  • 750 ml soð af græn­metiskrafti
  • 1 dós niðursoðnir tóm­at­ar
  • 1 dós kó­kos­mjólk
  • 100 gr. rauðar linsu­baun­ir
  • 3 msk. tóm­at­púrra
  • 1 og ½ tsk. túr­merik
  • 1 og ½ tsk. kúmen
  • 1 og ½ tsk. chili­duft
  • ¼ tsk cay­anne pip­ar
  • sjáv­ar­salt eft­ir smekk
  • pip­ar eft­ir smekk
  • 3 tsk. epla­e­dik
  • 1 búnt af fersku spínati
  • 1 búnt af fersk­um kórí­and­er

Aðferð

  1. Skolið linsu­baun­irn­ar vel með því að láta renna yfir þær vatn í sigti.

  2. Skerið lauk­inn og hvít­lauk­inn smátt og setjið í stór­an pott með ólífu­olíu. Steikið létt í nokkr­ar mín­út­ur þar til lauk­ur­inn er orðinn mjúk­ur.

  3. Skerið niður grasker og sæ­takart­öflu í litla ten­inga og bætið út í pott­inn. Bætið við klípu af salti og steikið í 3-4 mín­út­ur.

  4. Bætið þar næst við soði af græn­metiskrafti, niðursoðnum tómöt­um, kó­kos­mjólk, tóm­at­púrru, linsu­baun­um, túr­merik, kúmen, chilli­dufti, cay­anne pip­ar og salti og pip­ar. Blandið vel sam­an.

  5. Hækkið þá hit­ann og náið upp góðri suðu. Lækkið svo hit­ann í meðal­hita og látið þetta krauma í pott­in­um í um 30 mín­út­ur, en hrærið annað slagið í rétt­in­um.

  6. Þegar graskerið og sætu kart­öfl­urn­ar eru orðnar vel mjúk­ar má bæta epla­e­diki við. Hrærið því næst fersku spínati sam­an við. Ef þið viljið hafa pot­trétt­inn án kekkja má mauka hann með töfra­sprota, en það er alls ekki nauðsyn­legt, ein­ung­is smekks­atriði.

  7. Þessi rétt­ur fer afar vel með hrís­grjón­um og er gott að bera hann fram í skál með því að moka hrís­grjón­um í botn skál­ar­inn­ar, bauna­rétt­inn þar ofan á og saxa fersk­an kórí­and­er yfir. Pot­trétt­ur­inn geym­ist stór­kost­lega vel í frysti og er gott að eiga til að grípa til á köld­um og hrá­slaga­leg­um rign­ing­ar­dög­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert