HM partíréttir Evu Laufeyjar: Ofnbakaðar camembertsnittur

Snitturnar tilbúnar úr ofninum.
Snitturnar tilbúnar úr ofninum. mbl.is/Eva Laufey

Eva Lafu­ey und­ir­býr sig fyr­ir leik ald­ar­inn­ar eins og við hin og hér gef­ur að líta upp­skrift úr henn­ar smiðju þar sem ost­ur er í aðal­hlut­verki. Ein­fald­ur og góður rétt­ur sem get­ur ekki klikkað.

Heimasíðu Evu Lauf­eyj­ar má nálg­ast HÉR.

HM partíréttir Evu Laufeyjar: Ofnbakaðar camembertsnittur

Vista Prenta

Ofn­bakaðar brauðsnitt­ur með hvít­myglu­osti og mangó chut­ney

  • 1 snittu­brauð
  • Dala koll­ur
  • Mangó chut­ney
  • Stein­selja

Aðferð:

  1. Skerið snittu­brauðið í jafn stór­ar sneiðar.
  2. Leggið eina til tvær ostsneiðar yfir hverja brauðsneið.
  3. Setjið góða mat­skeið af mangó chut­ney yfir ost­inn.
  4. Bakið við 180°C í 5 – 7 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn verður gull­in­brúnn.
  5. Skreytið snitt­urn­ar með stein­selju og berið strax fram.
  6. Ofboðslega ein­falt og gott. Til­valið þegar þið eigið von á gest­um með skömm­um fyr­ir­vara eða þegar þið viljið gera vel við ykk­ur á köldu vetr­ar­kvöldi.
Hér eru snitturnar tilbúnar inn í ofn.
Hér eru snitt­urn­ar til­bún­ar inn í ofn. mbl.is/​Eva Lauf­ey
Gott snittubrauð er nauðsynlegt.
Gott snittu­brauð er nauðsyn­legt. mbl.is/​Eva Lauf­ey
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert