Þetta er HM ídýfan!

Þessi ídýfa er alveg frábær því í henni eru brauðsnúðar …
Þessi ídýfa er alveg frábær því í henni eru brauðsnúðar sem rífa skal og dýfa í dásamlega blöndu af osti og spínati. mbl.is/slapdashmom

Nú er HM hátíð í fullu fjöri og land­inn vík­ur ekki langt frá skján­um á meðan leik­ar standa sem hæst. Eitt­hvað verðum við þó að maula á meðan öllu þessu stend­ur því við verðum að hafa næga orku til að hvetja okk­ar menn áfram, spretta upp úr sóf­an­um annað slagið, steyta hnef­um á loft og bölva dómur­um og svo fram­veg­is. Það er því ekki úr vegi að gera vel við sig og mæl­um við sér­stak­lega með þess­ari ljúf­fengu osta-spínat-ídýfu. Hún er al­veg frá­bær því í henni eru brauðsnúðar sem rífa skal og dýfa í þessa dá­sam­legu blöndu af osti, spínati og meira af osti.

Þetta er HM ídýfan!

Vista Prenta

HM ídýf­an

  • 1 pizza­deig
  • 1 bolli ricotta ost­ur (það má einnig not­ast við kota­sælu)
  • 1 lít­ill poki ferskt spínat
  • 1 bolli rjóma­ost­ur
  • 1 poki mozzar­ella ost­ur
  • hand­fylli af rifn­um par­mes­an
  • chili­f­lög­ur

Aðferð:

  1. Blandið sam­an rjóma­osti, ricotta osti og hálf­um bolla af mozzar­ella osti í skál. Saxið spínatið og bætið út í skál­ina. Hrærið þetta sam­an þar til úr verður graut­ar­kennd blanda.

  2. Rúllið pizza­deig­inu út og skerið niður 10 jafna fern­inga úr deig­inu. Rúllið hverj­um fern­ingi upp í snúð.

  3. Takið steypu­járn­spönnu eða hringl­ótt köku­form og smyrjið að inn­an með ólífu­olíu eða smjöri. Raðið snúðunum meðfram brún­un­um en skiljið miðju móts­ins eft­ir tóma.

  4. Mokið osta-spínatblönd­unni í miðju móts­ins. Stráið chili flög­um yfir eft­ir smekk. Takið af­gang­inn af mozzar­ella ost­in­um ásamt par­mens­an ost­in­um og stráið yfir.

  5. Bakið við 175 gráður í 15 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er vel bráðnaður og brauðsnúðarn­ir orðnir brún­ir.

  6. Berið fram ylvolgt og njótið með fót­bolta­bull­um.
Rúllið pizzadeiginu út og skerið niður 10 jafna ferninga úr …
Rúllið pizza­deig­inu út og skerið niður 10 jafna fern­inga úr deig­inu. Rúllið hverj­um fern­ingi upp í snúð. Snúðunum skal svo raða inn­an í köku­mót. mbl.is/​slap­dashmom
Mokið osta og spínatblöndunni í miðju mótsins. Stráið chili flögum …
Mokið osta og spínatblönd­unni í miðju móts­ins. Stráið chili flög­um yfir eft­ir smekk, ásamt osti og skellið inn í ofn. mbl.is/​slap­dashmom



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert