Regnbogasúkkulaði barnanna

Krökkunum finnst ekki leiðinlegt að fá að hjálpa til við …
Krökkunum finnst ekki leiðinlegt að fá að hjálpa til við þessa litríku matargerð. mbl.is/AwwSam

Þessi upp­skrift er af­skap­lega auðveld og bráðsniðug í barna­af­mæl­in. Krökk­un­um finnst nú held­ur ekki leiðin­legt að fá að hjálpa til við þessa lit­ríku mat­ar­gerð, en það er fyr­ir­tak að fá þau til að fiska syk­ur­púðana úr morgun­korn­inu. Þessa stór­skemmti­legu upp­skrift fund­um við á vefsíðu Aww­Sam, en hún er ein­mitt þekkt fyr­ir að vera yf­ir­burða lit­rík og sniðug. Vefsíðu henn­ar má skoða hér.

Regnbogasúkkulaði barnanna

Vista Prenta

Regn­bog­asúkkulaði barn­anna

Hér er það sem þarf til:

  • Hvítt súkkulaði
  • Súkkulaðihnapp­ar í bláu, fjólu­bláu, gulu, app­el­sínu­gulu, grænu og bleiku
  • Tann­stöngl­ar
  • Bök­un­ar­papp­ír
  • Bök­un­ar­plata
  • Syk­ur­púðar úr Lucky Charms morgun­korni
  • Marg­litt köku­skraut
  • Góð sleikja

Aðferð:

  1. Setjið marg­litu súkkulaðihnapp­ana í skál, og bræðið hvern lit fyr­ir sig í ör­bylgju­ofni eða yfir vatns­blaði.

  2. Hellið hvíta súkkulaðinu á bök­un­ar­papp­ír ofan á bök­un­ar­plötu og dreifið úr svo úr verði ein stór, jöfn plata.

  3. Notið skeið og leyfið bræddu súkkulaðihnöpp­un­um að leka af skeiðinni yfir hvítu súkkulaðiplöt­una, Verið óhrædd að leika ykk­ur með lit­ina, krökk­un­um finnst nú hreint ekki leiðin­legt að fá að hjálpa til við þetta.

  4. Takið því næst tann­stöng­ul og dragið hann til og frá svo litaða súkkulaðið renni skemmti­lega út í hvíta súkkulaðið. Gætið þess þó að hrærigrauta ekki of mikið í lit­un­um, þeir mega ekki bland­ast of mikið sam­an því það verður ekki fal­legt.

  5. Takið syk­ur­púðana úr Lucky Charms morgun­korn­spakka og dreifið þeim yfir súkkulaðið. Sáldrið því næst marg­litu köku­skrauti yfir allt sam­an.

  6. Hristið bök­un­ar­plöt­una var­lega til og frá, til að jafna súkkulaðið, og stingið svo plöt­unni inn í ís­skáp og leyfið súkkulaðinu að harðna.

  7. Þegar súkkulaðið hef­ur harðnað nægi­lega vel má brjóta það niður í mola og bera fram við mik­il fagnaðarlæti og krakka­hróp.
Takið tannstöngul og dragið hann til og frá svo litaða …
Takið tann­stöng­ul og dragið hann til og frá svo litaða súkkulaðið renni skemmti­lega út í hvíta súkkulaðið. mbl.is/​Aww­Sam
Þessi uppskrift er afskaplega auðveld og bráðsniðug í barnaafmælin.
Þessi upp­skrift er af­skap­lega auðveld og bráðsniðug í barna­af­mæl­in. mbl.is/​Aww­Sam
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert