Grillað lamb með rosalegu kryddsmjöri

mbl/Arnþór Birkisson

Það er fátt betra á grillið en góð lamba­steik og hér get­ur að líta upp­skrift frá hinum eina sanna  Hafliða Hall­dórs­syni  sem veit nú meira en flest­ir hvernig best er að mat­reiða lamb.

Hafliði fer hér víða og bragðsam­setn­ing­arn­ar ættu að gleðja mat­gæðinga enda afar snjall­ar eins og hans er von og vísa.

Grillað lamb með rosalegu kryddsmjöri

Vista Prenta
Grillað lamb með sítr­ónu- og rós­marín­mar­in­er­ingu
Fyr­ir fjóra
  • 2 pk. lamba­steik­ur, mín­útu­steik­ur 200 gr hver pakki
  • 4 msk. fersk­ur sítr­ónusafi
  • 4 tsk. sítr­ónu­börk­ur
  • 1 ½ tsk. saxað ferskt rós­marín
  • 2 hvít­lauks­geir­ar, saxaðir
  • Nýmul­inn svart­ur pip­ar
  • 200 ml. repju­olía

Aðferð:

Blandið sítr­ónusafa, sítr­ónu­berki, rós­marín og hvít­lauk í mat­vinnslu­vél ásamt ol­í­unni. Kryddið með salti og svört­um pip­ar. Mar­in­erið kjötið í blönd­unni í að minnsta kosti 10 mín­út­ur.

Grillið í 2 mín­út­ur á hvorri hlið, hvílið í 5 mín­út­ur og berið fram.

Krydds­mjör

  • 160 gr. mjúkt smjör
  • 2 msk. fersk stein­selja
  • 2 msk. ferskt estragon
  • 2 msk. fersk­ur graslauk­ur
  • 2 msk. Dijon sinn­ep
  • 2 msk. korna sinn­ep

Blandið sam­an í skál, setjið á bök­un­ar­papp­ír og rúllið upp í sí­valn­ing og kælið. Skorið í mátu­lega bita við notk­un.

Sal­at með rauðkáli og fenn­el (slaw)

  • 4 boll­ar rauðkál skorið í þunn­ar sneiðar
  • 2 stk fenn­el í þunn­um sneiðum
  • 1 grænt epli
  • 2 msk rif­in fersk pip­ar­rót
  • 4 msk repju­olía
  • 2 msk epla­e­dik

Aðferð:

Blandað og smakkað til með salti og pip­ar, má gera deg­in­um áður og láta bíða í kæli yfir nótt.

Hafliði Halldórsson meistarakokkur.
Hafliði Hall­dórs­son meist­ara­kokk­ur. mbl/​Arnþór Birk­is­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert