Grillað lamb með sesam- og appelsínumarineringu

Grilluð lambasteik með sesam- og appelsínumarineringu.
Grilluð lambasteik með sesam- og appelsínumarineringu. mbl/Arnþór Birkisson

Það verður seint hægt að fá nóg af góðu kjöti þótt að úti sé skelf­ing­ar­veður um nán­ast allt land. En við lát­um það ekki á okk­ur fá enda löngu vitað að flest grill eru vatns­held og við vær­um ekki Íslend­ing­ar nema við grilluðum í öll­um veðrum. 

Hér gef­ur að líta enn eina snilld­ina frá Hafliða Helga­syni, mat­reiðslu­meist­ara en hér hef­ur hann búið til ses­am- og app­el­sínu­mar­in­er­ingu sem er vand­ræðal­ega góð og ger­ir mikið fyr­ir kjötið. 

Grillað lamb með sesam- og appelsínumarineringu

Vista Prenta

Grilluð lamba­steik með ses­am- og app­el­sínu­mar­in­er­ingu 

  • 2 pk. lamba­steik­ur, mín­útu­steik­ur 200 gr hver pakki
  • 2 msk. ses­am olía
  • 1 msk. ses­am­fræ, ristuð
  • 1 app­el­sína, börk­ur og safi
  • 1 msk. ostrusósa
  • 1 romaine sal­at­haus
  • ½ app­el­sína
  • 3 msk chili olía

Aðferð: 

Blandið kjöti ásamt, ses­a­mol­íu, ses­am fræj­um, app­el­sínu­berki, app­el­sínusafa og ostrusósu og mar­in­erið í að minnsta kosti 10 mín­út­ur. Grillið eða steikið í 2 mín­út­ur hvora hlið.

Skerið romaine langs­um, penslið með chili olíu og grillið í u.þ.b. 1 mín­út­ur á hvorri hlið á meðal­hita. Skerið app­el­sínu í báta, penslið með olíu og grillið í 2 mín­út­ur á meðal­hita.

Hafliði Halldórsson kann að grilla.
Hafliði Hall­dórs­son kann að grilla. mbl/​Arnþór Birk­is­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert