Einfaldasta eftirréttapítsa sem sögur fara af

Sérlega einföld... ávextirnir eru settir yfir pítsuna þegar búið er …
Sérlega einföld... ávextirnir eru settir yfir pítsuna þegar búið er að baka hana. Svo er flórsykri sáldrað yfir upp á punt. mbl.is/

Fyrst þjóðin er á annað borð alltaf að grilla er allt eins gott að taka grill­un­ina skref­inu lengra og grilla góðan eft­ir­rétt. Reynd­ar gera marg­ir það en út­send­ari Mat­ar­vefs­ins bragðaði þessa dá­sam­legu eft­ir­réttapítsu á Pítsu­gerðinni í Vest­manna­eyj­um og það var ekki annað hægt en að deila aðferðinni með les­end­um. 

Það eina sem þarf að gera er að fletja út gott pít­sa­deig en að sögn Berg­lind­ar Sig­mars­dótt­ur, eins eig­anda Pítsu­gerðar­inn­ar, er eina mik­il­væga atriðið að deigið sé gott. Ekki sé verra að vera með eldofn við hönd­ina en gott grill ger­ir krafta­verk. 

Það sem þú ger­ir er að fletja út deigið, smyrja á það Nu­tella, leggja deigið sam­an og baka uns til­búið. 

Þegar hálf­mán­inn kem­ur út skal setja ferska ávexti yfir, setja Nu­tella yfir og sáldra flór­sykri yfir. 

Flókn­ara er það nú ekki og Berg­lind tek­ur jafn­framt fram að hægt sé að fá Nu­tella með stevíu fyr­ir þá sem það vilja held­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert