Kakan sem tryllir barnaafmælið

mbl.is/awwsam

Þessi of­vaxna kleinu­hringjakaka kem­ur til með að slá í gegn í barna­af­mæl­um, nú eða bara hjá þeim sem kunna að meta kleinu­hringi. Hún lít­ur út fyr­ir að vera mikið maus að baka, en það kem­ur reynd­ar á óvart hversu auðvelt það er í fram­kvæmd að út­búa hana. Það eina sem þarf er um það bil 23 sentí­metra hringl­ótt köku­form. Það má vel tvö­falda upp­skrift­ina af kök­unni og baka tvö form og setja þá helm­inga sam­an ef þið viljið stærri köku. Einnig má leika sér með glassúr­inn og skrautið. Þessi upp­skrift kem­ur úr bók­inni Donuts: Over 50 In­venti­ve and Easy Recipes for Any Occati­on, eft­ir Vicky Gra­ham, en hún er al­veg ofboðslega skemmti­leg og sniðug fyr­ir áhuga­fólk um kleinu­hringi.

Kakan sem tryllir barnaafmælið

Vista Prenta

Risa­vax­in kleinu­hringjakaka

Í kök­una fer:

  • 230 gr. smjör
  • 230 gr. syk­ur
  • 4 meðal­stór egg
  • 230 gr. hveiti
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • klípa af salti
  • 2 msk. mjólk

Í glassúr­inn fer:

  • 500 gr. flór­syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 50 ml. mjólk
  • bleik­ur eða rauður mat­ar­lit­ur

Í köku­skrautið fer:

  • 1 pakki af hvít­um syk­ur­massa
  • mat­ar­lit­ur að eig­in vali
  • eða 2 pakk­ar af smarties 

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 180 gráður og smyrjið feiti inn­an í hringl­ótta köku­formið.

  2. Setjið smjör og syk­ur í hræri­véla­skál og þeytið þar til það er orðið létt og ljóst.

  3. Bætið við eggj­un­um, eitt í einu, og setjið eina skeið af hveiti með hverju eggi. Hrærið svo af­gang­in­um af hveit­inu gæti­lega sam­an við, ásamt lyfti­dufti og salti. Passið vel að of­hræra ekki blönd­una. Svo má bæta við mjólk­inni.

  4. Setjið deigið í formið og bakið í ofn­in­um á 180 gráður í 25 til 30 mín­út­ur. Stingið prjóni í miðju kök­unn­ar til að sjá hvort að hún er til­bú­in. Hún er til­bú­in ef prjónn­inn kem­ur hreinn til­baka. Leyfið kök­unni að kólna vel.

  5. Þá ger­um við glassúr­inn. Setjið flór­syk­ur, vanillu­dropa og helm­ing­inn af mjólk­inni, eða 25 ml., í skál og hrærið vel. Bætið af­gang­in­um af mjólk­inni smám sam­an við á meðan þið hrærið stans­laust í glassúrn­um. Að lok­um má bæta við nokkr­um drop­um af rauðum eða bleik­um mat­ar­lit þar til þið hafið náð fram þeim lit sem þið eruð ánægð með.

  6. Til að gera köku­skrautið skal skipta ein­um pakka af hvít­um syk­ur­massa í fjóra helm­inga. Litið hvern helm­ing með mat­ar­lit að eig­in vali. Rúllið út litla pulsu-laga rúll­ur með hönd­un­um sem koma til með að líta út eins og risa köku­skraut. Ef þið viljið stytta ykk­ur leið hérna má nota smarties í staðin fyr­ir að búa til köku­skraut úr syk­ur­massa.

  7. Þegar kak­an er nægi­lega köld má hræra vel í glassúrn­um og hella hon­um svo yfir kök­una, eða smyrja hon­um á með sleikju. Það er best að koma köku­skraut­inu fyr­ir á áður en glassúr­inn harðnar al­veg á kök­unni. Leyfið glassúrn­um samt að harðna vel áður en kak­an er bor­in fram.
Þessi kaka lítur út fyrir að vera mikið maus að …
Þessi kaka lít­ur út fyr­ir að vera mikið maus að baka, en það kem­ur á óvart hversu auðvelt það er að út­búa hana. mbl.is/​aww­sam
Það er um að gera að leika sér með glassúrinn …
Það er um að gera að leika sér með glassúr­inn og skreyt­ing­arn­ar, bleik­ur glassúr fyr­ir jarðaberja-kleinu­hring eða búa til brún­an glassúr fyr­ir súkkulaði-kleinu­hring. mbl.is/​aww­sam
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert