Er sólginn í djúpsteiktan mat

Læknirinn er á leið til Spánar í haust þar sem …
Læknirinn er á leið til Spánar í haust þar sem hann mun kynna sér vín og matarmenningu í Ribera del Duero, Rioja og Baskalandi. mbl.is/RFI

Ragn­ar Freyr Ingvars­son, lyf- og gigt­ar­lækn­ir er ef til vill bet­ur þekkt­ur sem Lækn­ir­inn í Eld­hús­inu. En hann er með vefsíðuna vin­sælu sem ber ein­mitt heitið Lækn­ir­inn í Eld­hús­inu, hef­ur skrifað mat­reiðslu­bæk­ur og tekið upp fjölda sjón­varpsþátta þar sem hann kynn­ir sér mat og mat­ar­menn­ingu, ásamt því að töfra fram ljúf­fenga rétti á öll­um víg­stöðum. Um þess­ar mund­ir er hann ein­mitt önn­um kaf­inn við að taka upp sjón­varpsþátt fyr­ir Sjón­varp Sím­ans sem kem­ur til með að heita Lambið og miðin – en við þær upp­tök­ur er ferðast víða um Ísland. Þar að auki er lækn­ir­inn á leið til Spán­ar í haust þar sem hann mun kynna sér vín og mat­ar­menn­ingu í Ri­bera del Du­ero, Ri­oja og Baskalandi. Það er því nóg um að vera hjá Ragn­ari, sem gaf sér þó tíma til að svara nokkr­um lauflétt­um spurn­ing­um fyr­ir okk­ur, þrátt fyr­ir anna­sama dag­skrá.

Kaffi eða te: Alltaf kaffi – einn besti drykk­ur sem mann­kyn­inu hef­ur áskotn­ast. Bæt­ir, hress­ir og kæt­ir!

Hvað borðaðir þú síðast? Ljúf­feng­an pasta­rétt ‒ gerðan úr lamba­kjöti, spergilkáli, kar­melluðum svepp­um, rjóma­osti og ristuðum val­hnet­um. Mjög ljúf­fengt og kem­ur á bloggið fljót­lega.

Hin full­komna máltíð: Hug­ljúf og bragðgóð máltíð sem nostrað hef­ur verið við drykk­langa stund sem maður síðan nýt­ur með fólki sem maður unn­ir, við kerta­ljós eða eld­stæði, með stæðilegt rauðvíns­glas í hönd. Fátt gleður mitt heimska hjarta meira en að gefa vin­um og vanda­mönn­um gott að borða.

Hvað borðar þú alls ekki? Hef eig­in­lega ekki fundið það ennþá. Ætli ég myndi ekki prófa allt einu sinni ‒ það er alla­vega töff að segja það. Svo kem­ur bara í ljós hvað maður þorir, þegar á hólm­inn er komið.

Avóka­dó á ristað brauð eða pönnu­kök­ur með sírópi? Má ég segja eitt­hvað allt annað? Galette pönnukaka ‒ sem er þunn pönnukaka með dji­on sinn­epi, skinku, osti og steiktu eggi. En ef það má ekki þá finnst mér þykk pönnukaka með smá sírópi og bei­koni dé­skoti gott. 

Súpa eða sal­at? Sal­at – en það verður að vera eitt­hvað hald­bært í því. Og góð sal­atsósa.

Upp­á­halds veit­ingastaður­inn: Það eru marg­ir góðir veit­ingastaðir á Íslandi. Get ekki sagt að ein­hver einn sé í sér­stöku upp­á­haldi. Hef þó farið nokkuð oft á Mat og Drykk und­an­farið ár. Þá er Skál á Hlemmi líka mjög skemmti­legt veit­inga­hús.

Besta kaffi­húsið: Ég hef ekki mik­inn tíma til að fara á kaffi­hús og er því varla dómbær á það.

Salt eða sætt? Myndi segja salt. Ég er í raun ekki mikið fyr­ir eft­ir­rétti og vel eig­in­lega alltaf for­rétt í stað eft­ir­rétt­ar þegar velja á tvennt af þrennu á mat­seðli.

Fisk­ur eða kjöt? Þetta eru erfiðari spurn­ing­ar en ég hélt ‒ það fer al­veg eft­ir stemm­ing­unni! Ég verð þó að játa að ég borða oft­ar kjöt en fisk.

Hvað set­ur þú á pizzuna þína? Ég er hrif­inn af því að setja kröft­uga hvít­lauk­sol­íu, smælki og geita­ost á flat­böku. Ef ég kemst ekki upp með það þá vil ég hafa eitt­hvað sterkt á henni, eitt­hvað sem ríf­ur aðeins í.

Hvað er það skrýtn­asta sem þú hef­ur borðað? Ætli það sé ekki sænski sur­strömm­ing ‒ sem er ein­hverslags síld sem fær að gerj­ast í niðursuðudós. Lykt­in er æv­in­týra­lega vond – en bragðið ekki svo hræðilegt. Þetta er há­karl þeirra Svía.

Mat­ur sem þú gæt­ir ekki lifað án: Smjör - ég elska smjör, allt verður betra þegar það er eldað upp úr smjöri. Svo verð ég að hafa hvít­lauk - helst rósa­hvít­lauk frá Lautrec í Frakklandi. Ég má ekki gleyma Kampot pip­ar frá Kambódíu. Og salti frá Salt­verki.

Upp­á­halds drykk­ur: Ljúf­fengt og bragðmikið rauðvín gæti ég eig­in­lega ekki verið án. Masi Cor­bec er í sér­stöku upp­á­haldi um þess­ar mund­ir.

Besta snarlið: Nýtt rúg­brauð með þykku lagi af smjöri, gam­aldags lambakæfu, brak­andi ferskri ag­úrkusneið og glas af ísskaldri nýmjólk.

Hvað kanntu best að elda? Eft­ir mikla elda­mennsku und­an­far­in ár þá hef­ur mér farið fram í eld­hús­inu þannig að ég held að ég sé að verða nokkuð ágæt­ur. Ég geri rosa­lega góðan lang­eldaðan lamba­frampart þó að ég segi sjálf­ur frá.

Hvenær eldaðir þú síðast fyr­ir ein­hvern? Ég er alltaf að elda fyr­ir fjöl­skyld­una mína. Nú um helg­ina er ég að fara að bjóða út­gef­and­an­um mín­um, leik­stjóra og fleira fólki í mat. Vona að það heppn­ist vel!

Upp­á­halds eld­húsáhaldið: Ég hef tals­verða ást á kokka­hníf­um og á orðið ansi stæðilegt safn af slík­um. Öll verk í eld­hús­inu verða auðveld­ari með skarp­an hníf í hönd.

Besta upp­skrift­ar­bók­in: Ég á næst­um 450 mat­reiðslu­bæk­ur. Ætli ég velji ekki bók­ina sem kom mér á bragðið ‒ Jamie Oli­ver, The naked Chef. Hún er ekki sú besta en veiti mér mik­inn inn­blást­ur þegar ég var ung­ur maður að stíga mín fyrstu skref í eig­in eld­húsi.

Sak­bit­in sæla: Ég verð að segja að ég er al­ger „sucker“ þegar það kem­ur að djúp­steikt­um mat. Eig­in­lega hvað sem það er. 

Upp­á­halds ávöxt­ur: Síðustu miss­eri hef ég verið hug­fang­inn af mangói - ótrú­lega ljúf­feng­ur ávöxt­ur sem á svo víða er­indi. Sér­stak­lega með grill­matn­um.

Besti skyndi­bit­inn: Ég elska djúp­steikt­an kjúk­ling ‒ ætli það væri ekki minn „go to“ skyndi­biti. Þá sjald­an sem ég leyfi mér eitt­hvað slíkt.

Ef þú feng­ir Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur í mat, hvað mynd­ir þú elda? Ég hef einu sinni setið til borðs með Víg­dísi í sum­ar­húsi for­eldra minna og snætt með henni kvöld­verð. Ætli ég myndi ekki reyna að líkja eft­ir þeirri máltíð þar sem hún virt­ist svo ánægð með mat­inn. Myndi byrja með sjáv­ar­rétti í for­rétt - hum­ar með hvít­laukss­mjöri og ein­faldri hvít­laukssósu og hvít­víns­dreitli. Svo lang­eldaðan lamba­frampart með blönduðu rót­argræn­meti og bragðmiklu ís­lensku sal­ati. Í eft­ir­rétt myndi ég gera handa henni skyr­búðing með blá­berja­sultu og fersk­um aðal­blá­berj­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert