Ostborgari með fersku salsa og sterku majonesi

Það er ekkert að þessari dásemd.
Það er ekkert að þessari dásemd. mbl/Arnþór Birkisson

Ost­borg­ar­inn á Bragg­an­um er með chedd­ar-osti og notaður er 175 g borg­ari. Það sem ein­kenn­ir hann er ferska salsað sem borið er fram með hon­um og sterka maj­o­nesið.

Ostborgari með fersku salsa og sterku majonesi

Vista Prenta

Pico de gallo-salsa

  • 4 tóm­at­ar, skorn­ir í litla bita
  • 1 meðal­stór rauðlauk­ur, þunnt skor­inn
  • búnt af ný­söxuðu kórí­and­er
  • 4 hvít­lauks­geir­ar, skorn­ir í litla bita
  • 1 jalapeno, skor­inn í litla bita
  • saf­inn úr einni límónu
  • salt og nýmalaður svart­ur pip­ar eft­ir smekk

Öllu blandað vel sam­an.

Sterkt skyrmajo­nes

  • 50 g maj­o­nes
  • 10 g sriracha-sósa
  • 2 g ses­a­mol­ía
  • 10 g skyr

Öllu blandað vel sam­an. Pass­ar vel með frönsk­um.

Einnig er hægt að fá veganborgara úr kínóa með mangó …
Einnig er hægt að fá veg­an­borg­ara úr kínóa með mangó og guaca­mole sósu. mbl/​Arnþór Birk­is­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert