Einföld eplakaka í bolla

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Það eru sjálfsagt flest­ir sem elska epla­kök­ur enda eru þær ein­stak­lega full­kom­in fyr­ir­bæri og bráðnauðsyn­leg­ar endr­um og eins. Þessi upp­skrift er úr smiðju Berg­lind­ar Hreiðars­dótt­ur á Gotteri.is og bregður hún á það snjalla ráð að baka hverja köku í bolla sem er afar lekk­ert.

Einföld eplakaka í bolla

Vista Prenta

Bökuð kara­mellu­epli í bolla

Epla­blanda

  • 1 x stórt Jona­gold-epli (eða tvö minni gul/​græn epli)
  • 1 msk. hveiti
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 msk. púður­syk­ur
  • 1 msk. saxaðar pek­an­hnet­ur
  • Wal­kers-kara­mell­ur (þess­ar í fjólu­bláu bréf­un­um)

„Kröst“ á topp­inn

  • 50 gr. brætt smjör
  • 50 gr. haframjöl
  • 1½ msk. púður­syk­ur
  • 1 msk. hlyns­íróp
  • 1 tsk. kanill
  • ¼ tsk. salt

Aðferð:

  1. Skerið eplið niður í litla ten­inga (um það bil 0,5 x 0,5 cm).
  2. Blandið rest­inni af hrá­efn­un­um fyr­ir epla­blönd­una sam­an við epla­bit­ana fyr­ir utan kara­mell­urn­ar.
  3. Skiptið epla­blönd­unni niður í 3-4 bolla og fyllið þá rúm­lega til hálfs, setjið þá eina til tvær kara­mell­ur ofan á og út­búið því næst „kröstið“.
  4. Setjið öll hrá­efn­in fyr­ir „kröstið“ sam­an í skál og setjið ofan á epla­blönd­una og kara­mell­una. Bakið í ör­bylgju­ofn­in­um í 3- 3½ mín­útu eða þar til bland­an fer aðeins að „bubbla“.
  5. Takið þá úr ofn­in­um, hrærið upp í blönd­unni og blandið öllu sam­an og leyfið aðeins að kólna (varið ykk­ur því boll­inn er heit­ur).
  6. Gott er að bera bökuðu epl­in fram með góðri ís­kúlu og smá af söxuðum pek­an­hnet­um. Hvað er skemmti­legra en það að bjóða upp á epla­köku í krútt­leg­ustu boll­um heims!
  7. Mig grun­ar líka að ansi marg­ir Íslend­ing­ar séu að safna þess­um boll­um og nú er held­ur bet­ur komið nýtt nota­gildi fyr­ir þá. Bolli er sko ekki bara bolli, hann má vera köku­form líka :)
mbl.isl/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert