Ofureinföld ísterta

Gera má ístertu í næstum hvaða íláti sem er.
Gera má ístertu í næstum hvaða íláti sem er. mbl.is/epicurious

Þegar þörf­in til þess að búa til eft­ir­rétt án þess að kveikja á bak­arofn­in­um knýr að dyr­um er eina ráðið að búa til ís­tertu. Hana er hægt að gera í hvaða íláti sem er, köku­móti, brauðformi, eða gömlu ís­boxi jafn­vel. Gam­an að dúlla í þessu með krökk­un­um og full­kom­inn eft­ir­rétt­ur að sumri til. Hér eru leiðbein­ing­ar í tíu skref­um, hvernig búa skal til ljúf­fenga ís­tertu úr rjóma, berj­um og smá­kök­um eða kexi. 

1. Veljið ílát til að búa tert­una til í

Áður en ráðist er í fram­kvæmd­ir við að búa til ís­tertu þarf að kom­ast að því hversu mikið magn dall­ur­inn sem val­inn er til að búa tert­una til í tek­ur. Til að gera þetta er best að fylla ílátið eða formið sem nota skal með vatni. Hellið svo vatn­inu í stóra mæli­könnu. Til dæm­is myndi 22 senti­metra mót sem er um það bil 7 senti­metr­ar að hæð rúma 12 bolla af vatni.

2. Klæðið að inn­an með plast­filmu

Þurrkið ílátið vel og klæðið það svo að inn­an með plast­filmu. Við mæl­um með því að leggja tvö­falda filmu í kross inn­an í skál­ina og leyfa nægri plast­filmu að hanga niður með hliðunum að ut­an­verðri skál­inni.

3. Þeytið rjóma

Það þarf næg­an rjóma til að fylla upp í helm­ing íláts­ins. Þar sem rjómi tvö­fald­ast að um­fangi þegar hann er þeytt­ur er best að byrja með fljót­andi rjóma sem myndi fylla upp í ¼ íláts­ins. Svo fyr­ir 12 bolla ílát myndu 6 boll­ar af þeytt­um rjóma duga, sem þýðir þá 3 boll­ar af fljót­andi rjóma til að þeyta. Þeytið rjómann þar til hann verður vel stíf­ur, hrærið svo sam­an við klípu af salti og smá­veg­is af flór­sykri. Smakkið til og bætið við sykri ef þarf. Það má einnig bæta við smá­veg­is af vanillu eða bragðbæt­andi efn­um á borð við möndlu­dropa eða jafn­vel romm.

mbl.is/​epicuri­ous

4. Und­ir­búið ávexti

Við vilj­um nægi­legt magn af ávöxt­um til að fylla upp í ¼ íláts­ins. Svo fyr­ir 12 bolla ílát þarf 3 bolla af kirsu­berj­um. Það má nota hvers kon­ar ber, allt eft­ir smekk, eða jafn­vel apríkós­ur, plóm­ur eða fer­skj­ur skorn­ar í litla bita. Kjarn­hreinsið þau ber eða ávöxt sem nota skal og skerið í litla munn­bita. Setjið ávext­ina í skál og kreistið smá­veg­is sítr­ónusafa yfir. Gott er að hræra nokkr­um mat­skeiðum af góðri berja­sultu sam­an við ber­in.

mbl.is/​epicuri­ous

5. Lag af kexi eða smá­kök­um

Við þurf­um nóg kex til að fylla upp í helm­ing móts­ins svo fyr­ir ílát sem rúm­ar 12 bolla þurf­um við 6 bolla af kexi. Hægt er að nota hvaða kex eða smá­kök­ur sem er, en gæta þarf þess að þær séu flat­ar og ekki of þykk­ar. Ef kexið er of þykkt eða með of mikl­um hnet­um eða berj­um í mýkj­ast þær ekki nægi­lega vel svo hægt sé að skera í gegn­um þær. Byrj­um á því að raða kexi í botn móts­ins en ekki raða þeim ofan á hverja aðra, brjótið frek­ar kexið til að þekja botn íláts­ins.

mbl.is/​epicuri­ous

6. Lag af ávöxt­um

Því næst má raða lagi af ávöxt­um yfir kexið. Best er að hella því yfir með ausu, en gætið þess að hafa lagið ekki of þykkt og helst ekki láta það ná út í brún­irn­ar. Við vilj­um skilja eft­ir pláss til hliðanna svo að lagið af þeytt­um rjóma nái út yfir ávext­ina til að kak­an hald­ist sem best sam­an.

mbl.is/​epicuri­ous

7. Lag af þeytt­um rjóma

Næst kem­ur lag af þeytt­um rjóma, dreifið rjóm­an­um yfir lagið af berj­un­um eða ávöxt­un­um sem er rétt svo þykkt að ekki sést leng­ur í ávext­ina í gegn­um ber­in. Gott er að setja rjóma niður með hliðum ávaxt­anna. Svo má gera þetta koll af kolli, lag af kexi, lag af ávöxt­um, lag af rjóma þar til ílátið er fullt. Þá skal enda á lagi af kexi. Takið þá að lok­um í end­ana á plast­filmunni sem hang­ir út yfir brún­ir íláts­ins og leggið yfir kök­una svo það sé vel breitt yfir hana.

mbl.is/​epicuri­ous

8. Kælið tert­una

Stingið tert­unni inn í ís­skáp og leyfið henni að dúsa þar í að minnsta kosti 24 klukku­stund­ir. Þarna ger­ast töfr­arn­ir, rjóm­inn, ávext­irn­ir og kexið mýk­ist, bland­ast sam­an og stífn­ar svo hægt er að skera tert­una í sneiðar. En þetta tek­ur góðan tíma og ekki er hægt að svindla með tím­ann, verið þol­in­móð og leyfið kök­unni að taka sig í 24 klukku­stund­ir.

9. Takið kök­una úr form­inu

Þegar tert­an hef­ur fengið að sitja í ís­skápn­um í 24 klukku­stund­ir má taka hana út og ná henni úr form­inu. Það er alltaf dá­lítið stress­andi að ná tertu úr formi. Takið plastið ofan af tert­unni. Leggið stór­an tertudisk ofan á og snúið henni á hvolf. Lyftið ílát­inu var­lega upp og þá ætti tert­an að renna úr form­inu og sitja á tertudisk­in­um. Takið plast­filmuna svo var­lega af tert­unni.

mbl.is/​epicuri­ous

10. Skreytið tert­una og berið á borð

Bera má ís­tert­una á borð eins og hún er, eða leika sér með hana og skreyta. Hægt er að skera ferska ávexti og leggja ofan á hana, eða þeytt­an rjóma. Látið hug­mynda­flugið ráða ferð. En gætið þess að bera tert­una fljót­lega á borð og njóta henn­ar strax, ís­tert­ur eiga það jú til að bráðna fljótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert