Lambalæri sem ömmurnar elska

mbl.is/Bon Appetit

Krydd­in sem notuð eru í þess­ari upp­skrift hafa þann magnaða kraft að geta flutt ís­lenska fjalla­lambið sem leið ligg­ur yfir ókunn­ar lend­ur Aust­ur­landa fjær þar sem æv­in­týr­in ger­ast. Það er að minnsta kosti eng­in grá­mygla yfir þess­ari upp­skrift enda hvernig væri það hægt með svona æv­in­týra­lega krydd­blöndu?

Mat­ar­vef­ur­inn hafði spurn­ir af ömm­u­klúbbi nokkr­um sem elsk­ar víst þenn­an rétt og eld­ar við hvert til­efni. Við selj­um það ekki dýr­ar en við keypt­um en skor­um á ykk­ur að prófa. 

Lambalæri sem ömmurnar elska

Vista Prenta

Aust­ur­lenskt lamba­læri

Stórt lamba­læri

Krydd á lærið

  • Salt og nýmalaður pip­ar
  • 2 msk. kumm­in­fræ
  • 2 tsk. kúmen­fræ
  • 2 tsk. kórí­and­erfræ
  • 2 lít­il chilí­al­d­in, smátt söxuð
  • 4 hvít­lauksrif, fínt söxuð
  • ½ bolli ólífu­olía
  • 1 msk. papriku­duft
  • ½ tsk. kanill

Krydd­lög­ur

  • ½ tsk. kúmen­fræ
  • ½ tsk. kórí­and­erfræ
  • ¼ bolli ólífu­olía
  • 1 stór lauk­ur, skor­inn í þunn­ar sneiðar
  • 1 msk. chilí­duft
  • 1 tsk. túr­merik
  • ½ tsk. nýmalaður svart­ur pip­ar
  • ¼ tsk. kanill
  • 1 dós niðursoðnir tóm­at­ar, brytjaðir
  • 4 boll­ar kjúk­linga­soð (úr líf­ræn­um kjúk­lingakrafti)
  • sjáv­ar­salt

Meðlæti

  1. Græn­met­issal­at með sultuðum rauðlauk og sítr­ón­um.
  2. Hreinsið fit­una af lær­inu og skerið grunn­ar rif­ur í kjötið. Nuddið það vel með salti og pip­ar og leggið til hliðar á grind.
  3. Myljið kumm­in-, kúmen- og kórí­and­er­fær­in í mortéli, setjið í skál ásamt chilí, hvít­lauk, olíu, papriku og kanil, hrærið vel sam­an og smyrjið á lærið. Hyljið lærið (t.d. með bök­un­ar­papp­ír) og látið það standa á grind­inni í 12-24 tíma á köld­um stað, en að lok­um a.m.k. klukku­tíma við stofu­hita.
  4. Hitið ofn­inn í 230°C og grillið lærið þar til það er vel brúnað all­an hring­inn, 20-25 mín­út­ur. Takið lærið úr ofn­in­um og látið það standa meðan þið lækkið hit­ann í 120°C.
  5. Á meðan er kúmen- og kórí­and­erfræið fyr­ir krydd­lög­inn mulið.
  6. Hitið ol­í­una í stór­um potti og látið lauk­inn malla þar til hann er orðinn glær, í 5-7 mín­út­ur. Bætið út í chilí, túr­meriki, svört­um pip­ar, kanil og möluðu fræ­inu. Látið krauma í 2-3 mín., bætið tómöt­un­um og soðinu út í, saltið hæfi­lega og sjóðið um stund.
  7. Setjið lamba­lærið í ofn­pott og hellið leg­in­um yfir, bætið við vatni ef lög­ur­inn dug­ar ekki til að ná hálfa leið upp á hliðarn­ar. Lokið pott­in­um og látið lærið malla í ofn­in­um í 4½ - 5½ tíma. Snúið lær­inu einu sinni á miðjum steik­ing­ar­tím­an­um. Takið lærið upp úr pott­in­um og hyljið með álp­app­ír til að halda því heitu meðan þið búið til sós­una.
  8. Sjóðið lög­inn niður við meðal­hita þar til hann hef­ur minnkað um helm­ing, 25-30 mín. Smakkið sós­una og saltið eft­ir smekk. Ausið henni síðan yfir lærið og berið það fram með græn­met­issal­at­inu.
  9. Þenn­an rétt má út­búa tveim­ur dög­um fyr­ir fram og hita upp.

Heim­ild: Bon App­e­tit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert