Nýjasta æðið í barnaafmælum

Þessar bráðnuðu ísmúffur vekja alla jafna mikla kátínu í barnaafmælum.
Þessar bráðnuðu ísmúffur vekja alla jafna mikla kátínu í barnaafmælum. mbl.is/awwsam

Þess­ar stór­sniðugu bolla­kök­ur líta út eins og rjómaís í brauðformi sem dottið hef­ur á hvolf og er al­veg að bráðna. Í raun er rjómaís­inn bollakaka sem bökuð er í brauðformi, smurð með kremi og að lok­um húðuð með súkkulaði og stungið ofan í súkkulaðipoll sem harðnar svo sam­an við þessa skemmti­legu út­komu. Þess­ar bráðnuðu ísmúff­ur vekja alla jafna mikla kátínu í barna­af­mæl­um og því orðnar svona líka vin­sæl­ar. Það er smá dúlle­rí að búa þær til en þó af­skap­lega auðvelt. Þær eru svo fer­lega sæt­ar að þeim fyr­ir­gefst al­veg vesenið.

Það eina sem þarf eru sprautu­pok­ar, bök­un­ar­papp­ír, lit­ríkt köku­skraut, súkkulaðihnapp­ar í hvítu og bleiku eða hvaða lit­um sem er, brauðform fyr­ir rjómaís, bolla­köku­form, og góða bolla­köku­upp­skrift. Í raun er hægt að nota hvaða upp­skrift sem er, en ef ykk­ur vant­ar slíka þá er þessi hérna al­veg stór­góð: 

Góð upp­skrift af hvítu súkkulaðikremi er einnig nauðsyn­leg, en afar góða upp­skrift af því má finna hér: 

Nýjasta æðið í barnaafmælum

Vista Prenta

Bráðnaðar ísmúff­ur

  • Bolla­köku­deig
  • Bolla­kökukrem
  • Bolla­köku­form
  • Brauðform fyr­ir rjómaís
  • Súkkulaðihnappa í hvítu og bleiku
  • Köku­skraut
  • Sprautu­poka
  • Bök­un­ar­papp­ír

Aðferð

  1. Takið ofnskúffu og leggið bök­un­ar­papp­ír ofan á. Hitið ofn­inn í 180 gráður. Komið vöfflu­formun­um fyr­ir í plötu af bolla­köku­formi svo þau snúi upp.

  2. Setjið bolla­köku­deigið í sprautu­poka og sprautið í hvert vöfflu­form svo þið fyllið upp í 2/​3 hluta. Stingið bolla­köku­form­inu inn í ofn og bakið í 20-25 mín­út­ur eða þar til múff­urn­ar verða gull­in­brún­ar að lit. Takið þær þá úr ofn­in­um og leyfið þeim að kólna vel.

  3. Takið hvíta súkkulaðikremið og smyrjið á hverja bolla­köku svo þær líti út eins og ískúla. Setjið kök­urn­ar svo inn í ís­skáp til að leyfa krem­inu að harðna vel.

  4. Takið tvær skál­ar, bræðið hvítt súkkulaði í einni og bleikt í hinni. Það má gera annaðhvort í ör­bylgju­ofni eða yfir vatnsbaði. Setjið bleika súkkulaðið í sprautu­poka og sprautið á bök­un­ar­papp­ír sem ligg­ur í ofnskúffu svo það líti út eins og bráðinn poll­ur af rjómaís. End­ur­takið þetta þar til þið eruð kom­in með jafn marga polla og þið eruð með af bolla­kök­um.

  5. Dýfið bolla­kök­unni ofan í bráðna súkkulaðið svo kremið sé hjúpað með súkkulaði, klessið svo bolla­kök­unni á hvolf ofan í poll af bráðnu súkkulaði, með sama lit. Það er nauðsyn­legt að gera þetta áður en súkkulaðipoll­ur­inn harðnar.

  6. Að lok­um má strá köku­skrauti yfir súkkulaðipoll­ana og bolla­kök­urn­ar, áður en súkkulaðihúðin harðnar. Þá skal stinga ofnskúff­unni inn í ís­skáp og leyfa súkkulaðinu að harðna. Þegar kök­urn­ar eru til­bún­ar verður að flysja bök­un­ar­papp­ír­inn var­lega frá súkkulaðinu og stilla kök­un­um svo upp á kökudisk eða fat.
Það er smá dúllerí að búa þessar bollakökur til en …
Það er smá dúlle­rí að búa þess­ar bolla­kök­ur til en þó af­skap­lega auðvelt. Þær eru svo fer­lega sæt­ar að þeim fyr­ir­gefst al­veg vesenið. mbl.is/​aww­sam
Þegar kökurnar eru tilbúnar verður að flysja bökunarpappírinn varlega frá …
Þegar kök­urn­ar eru til­bún­ar verður að flysja bök­un­ar­papp­ír­inn var­lega frá súkkulaðinu og vera viss um að það sé al­veg harðnað. mbl.is/​aww­sam
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert