Ljúffengur lax með þremur sósum

Laxinn undirbúinn fyrir grillun.
Laxinn undirbúinn fyrir grillun. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Lax er herra­manns­mat­ur og ekki spill­ir fyr­ir ef hann er villt­ur. Hér er ein­stak­lega skemmti­leg upp­skrift að laxi sem á end­an­um var bor­inn fram í hrís­grjónapapp­ír að aust­ur­lensk­um hætti.

Það er Ragn­ar Freyr Ingvars­son – bet­ur þekkt­ur sem Lækn­ir­inn í eld­hús­inu – sem á heiður­inn af þess­ari upp­skrift sem er al­veg hreint upp á tíu.

Grænmetið komið á hrísgrjónapappírinn.
Græn­metið komið á hrís­grjónapapp­ír­inn. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son

Ljúffengur lax með þremur sósum

Vista Prenta

Dá­sam­lega ljúf­feng­ur villt­ur ís­lensk­ur lax - oriental style - með þrenns kon­ar sós­um, grilluðu pok choy og fullt af fersku græn­meti

Það er ekki leiðin­legt þegar maður fær upp­hring­ingu á föstu­degi þar sem stang­veiðimaður þarf að koma ný­veidd­um laxi í hús. Slík skila­boð fékk ég á föstu­dag­inn síðastliðinn frá Hjör­dísi Pét­urs­dótt­ur en hún kom fær­andi hendi með þenn­an fal­lega spriklandi ferska lax.

Og auðvitað varð að elda hann hratt og ör­ugg­lega. Og mér datt ekk­ert annað í hug en að gera það á eins fersk­an hátt og mögu­lega.

Lax­inn

  • 1 fersk­ur villt­ur ís­lensk­ur lax (auðvitað má nota eld­islax)
  • 1 sítr­óna
  • 1 rauður chili
  • 2 vor­lauk­ar
  • 2-3 hvít­lauksrif
  • 7 cm engi­fer
  • hand­fylli af fersk­um ís­lensk­um kryd­d­jurt­um
  • 16 blöð af hrís­grjónapapp­ír


Græn­metið

  • kína­kál
  • paprík­ur í mörg­um lit­um
  • bauna­spír­ur
  • vor­lauk­ur
  • ra­dís­ur
  • gul­ræt­ur
  • kast­an­íu­hnet­ur
  • blandað laufsal­at
  • ferskt kórí­and­er
  • ferskt basil


Meðlæti

  • 3 pak choy
  • 1 msk. soyasósa
  • 1 msk. jóm­frúarol­ía
  • 1/​2 rauður chil­ipip­ar
  • salt og pip­ar


Fyr­ir sós­urn­ar

Núm­er eitt:

  • 4 hlut­ar maj­ónes
  • 1 hluti rauð sriracha-sósa


Núm­er tvö:

  • 3 hlut­ar jóm­frúarol­ía
  • 1 hluti soyasósa
  • 1 tsk. smátt saxaður hvít­lauk­ur
  • 1 tsk. smátt saxaður engi­fer
  • 1/​2 rauður chili-pip­ar – smátt saxaður
  • 1/​2 tsk. ristuð ses­am­fræ
  • 1 tsk. hun­ang
  • safi úr hálfri sítr­ónu
  • salt og pip­ar


Núm­er þrjú:

  • 4 hlut­ar maj­ónes
  • 1 hluti græn sriracha-sósa
  • 1 msk. fersk­ur graslauk­ur, smátt skor­inn

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera sítr­ón­urn­ar, chili-pip­ar­inn, vor­lauk­inn, engi­fer­inn, kryd­d­jurtirn­ar og hvít­lauk­inn gróf­lega niður og komið fyr­ir inni í kviðar­holi fisks­ins.
  2. Pakkið svo lax­in­um vand­lega inn í álp­app­ír, lík­lega er best að hafa hann í tvö­földu lagi af papp­ír, þannig slepp­ur eng­inn vökvi frá fisk­in­um og hann sýður í eig­in safa. 
  3. Útbúið sós­urn­ar. Það er nauðaein­falt. Bara að blanda hrá­efn­un­um sam­an í skál­ar og tylla á stórt fat.
  4. Sneiðið svo græn­metið smátt og raðið því í kring­um sósu­skál­arn­ar.
  5. Setjið lax­inn á blúss­heitt grillið í 35 mín­út­ur eða svo. Það er góð hug­mynd að snúa hon­um einu sinni á meðan eld­un stend­ur þannig að hann eld­ist jafnt í gegn.
  6. Pak choy-ið er í raun bara kína­kálsaf­brigði. Það er skorið niður í helm­inga og öllu nema chili sáldrað yfir. Það er svo grillað á háum hita þangað til að blöðin visna og græn­metið tek­ur á sig lit. Þegar það er til­búið er smátt skorn­um chili dreift jafnt yfir. 
  7. Ég hafði keypt hrís­grjónapapp­ír í Víet­nam mar­ket á Suður­lands­veg­in­um. Það þarf ekk­ert annað en að væta hann í heitu vatni og láta svo kólna á diski. 
  8. Svo var bara að raða hrá­efn­inu á hrís­grjónapapp­ír­inn og vefja upp og taka svo stór­ann bita. Og njóta. Það er nú aðal­atriðið. 
Laxinn tilbúinn.
Lax­inn til­bú­inn. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Pok choy-ið grillað og fínt.
Pok choy-ið grillað og fínt. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Tilbúinn á grillið.
Til­bú­inn á grillið. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert