Einföld en ómótstæðileg súkkulaðifreisting

00:00
00:00

Hér gef­ur að líta eft­ir­rétt sem er svo girni­leg­ur að annað eins hef­ur vart sést. Ef þið eruð ekki viss er best að horfa á mynd­bandið en þessi snilld er einn af Hraðrétt­um Mat­ar­vefs­ins sem við erum svo ógn­ar stolt af. 

Einföld en ómótstæðileg súkkulaðifreisting

Vista Prenta

Súkkulaðibök­ur með ís og súkkulaðisósu

fyr­ir 10

Botn­inn:

  • 200 g Hobn­obs kex
  • 5 msk smjör brætt

Aðferð:

Hitið ofn­inn í 180°C. Myljið kexið í mat­vinnslu­vél eða með köku­kefli í plast­poka. Bætið smjöri út í og blandið vel sam­an. Smyrjið smellu­form (24 cm) eða ofn­fast böku­form með olíu eða smjöri og fóðrið það að inn­an með kex­mylsn­unni. Einnig er gott að nota múffu sili­kon­form. Bakið deigskel­ina í 10 mín.  

Fyll­ing:

  • 200 g gæðasúkkulaði í bit­um (Green&Black)
  • 3 dl rjómi
  • 2 stór egg
  • 1 ½  tsk. vanillu­drop­ar

Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði. Hellið rjóm­an­um í skál. Bætið eggj­um út í einu í einu og síðan vanillu­drop­um. Hellið súkkulaðinu út í og pískið létt sam­an. Hellið fyll­ing­unni í böku­skel­ina og bakið áfram í 20 mín. Berið fram strax eða kælið og hitið augna­blik áður en þið berið fram.

Súkkulaðisósa:

  • 50 g gæðasúkkulaði (Green&Black)
  • 2 msk. hlyns­íróp
  • 2 msk. rjómi
  • 2 msk. vatn

Sjóðið allt sam­an í potti við væg­an hita.  

Meðlæti:

  • 1 box Häa­gen-Dazs ís með vanillu
  • Fersk ber

Setjið kök­ur á fal­lega diska. Stráið berj­um í kring. Setjið kúlu af Häa­gen-Dazs ís ofan á hverja köku. Setjið súkkulaðisós­una ofan á ís­inn og ber­in allt um kring.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert