Ómótstæðilegur fiskur sem allir í fjölskyldunni elska

mbl.is/Hanna Þóra

Djúp­steikt­ur fisk­ur er mögu­lega eitt það al­besta sem hægt er að borða og er það skoðun und­ir­ritaðrar að við borðum hreint ekki nóg af þess­ari dá­semd. Hér er upp­skrift úr smiðju Hönnu Þóru sem er í senn ótrú­lega ná­kvæm og auðvelt að fylgja - svo að ekki sé minnst á mynd­bandið sem fylg­ir með. 



Ómótstæðilegur fiskur sem allir í fjölskyldunni elska

Vista Prenta

Ómót­stæðilegt fish and chips með heima­gerðu remúlaði og co­leslaw

Upp­runi

Ég veit að þetta er kannski ekki það allra holl­asta en það er svo gam­an þegar ein­hver rétt­ur höfðar til margra ald­urs­hópa.  Fisk­ur­inn sem slík­ur er ekki óholl­ur enda brak­andi fersk­ur þegar hann kem­ur upp úr pott­in­um  Ég er búin að mæla hvað fer mikið af olíu þegar fisk­ur­inn er djúp­steikt­ur og það er ekki mikið….. en meðlætið er smá ,,djúsi¨ en það ger­ir svo sem ekki mikið til svona endr­um og eins.

For­vinna

Sal­atið (co­leslaw) má búa til fyrr um dag­inn og einnig er gott að út­búa remúlaðið eitt­hvað áður – gott að láta það taka sig.  Ég laga einnig deigið eitt­hvað áður og læt það aðeins standa.  Best að djúp­steikja fisk­inn rétt áður en hann er bor­inn fram.

Hrá­efni:

Fisk­ur og kart­öfl­ur

  • Rúm­lega 1 kg þorsk­hnakki (u.þ.b. 12 bit­ar)
  • Olía sem þolir vel hita – ég hef notað Sól­blóma­ol­íu (einnig má nota repju­olíu en það er meira bragð af henni)
  • 1,5 kg kart­öfl­ur – soðnar í 15 mín­út­ur og síðan skorn­ar í strimla eða litla báta

Or­lydeig

  • 300 ml bjór
  • 1 msk syk­ur
  • 1 tsk salt
  • 1 msk olía
  • 1 eggj­ar­auða
  • 285 g hveiti
  • 1 msk maizenamjöl
  • Aðeins af pip­ar
  • 1 eggja­hvíta

Remúlaði

  • 1 dl sýrður rjómi
  • ½ dl maj­ónes
  • ½ tsk dijon sinn­ep
  • 1 tsk kapers – saxað
  • ½ skarlottu­lauk­ur – saxaður
  • 1 msk fersk stein­selja – söxuð
  • ½ tsk syk­ur
  • Ögn af pip­ar
  • 2 msk rel­ish
  • Nokkr­ir drop­ar af sítr­ónusafa
  • Salt
  • Karrý á hnífsoddi

Co­leslaw

  • 6 dl hvít­kál – skorið í fín­ar ræm­ur
  • 2 dl gul­ræt­ur – rifn­ar
  • 1 dl maj­ónes
  • 1 dl sýrður rjómi
  • ¼ dl hvít­vín­se­dik
  • ¼ dl syk­ur
  • Tæp­lega 1 tsk sell­e­rífræ (má sleppa)

Aðferð:

Or­lydeig

  1. Bjór, hveiti, syk­ur, olía, maizenamjöl, pip­ar og eggj­ar­auða pískað sam­an – látið standa í 1 klukku­stund
  2. Eggja­hvít­an þeytt og blandað var­lega sam­an við rétt áður en deigið er notað

Fisk­ur og kart­öfl­ur djúp­steikt

  1. Fisk­ur skor­inn í bita
  2. Olía hituð í potti – gott að hafa yf­ir­borðið sem mest svo hægt sé að djúp­steikja meira í einu
  3. Ágætt að djúp­steikja kart­öfl­urn­ar fyrst – ofn­inn hitaður í u.þ.b. 150°C.  Kart­öfl­ur djúp­steikt­ar þar til kom­inn er fal­leg­ur lit­ur á þær – sett­ar á fat og þeim haldið heit­um í ofn­in­um
  4. Fisk­bit­um dýpt ofan í deigið og djúp­steikt í u.þ.b. 5 mín­út­ur eða þar til kom­inn er fal­leg­ur lit­ur á þá – sjá mynd­band
  5. Gott að setja fisk­inn á eld­húspapp­ír og láta ol­í­una renna aðeins af

Remúlaði

  1. Öllu hrá­efni blandað sam­an í skál og hrært sam­an

Co­leslaw

  1. Öllu hrá­efni blandað sam­an. Hef ekki alltaf átt sell­e­rífræ en það hef­ur ekki komið að sök

Meðlæti

Chili­mæjó er einnig gott með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert