Smjörsteiktur humar á pönnu

Humarinn er borinn strax fram á pönnunni með góðu brauði …
Humarinn er borinn strax fram á pönnunni með góðu brauði og sítrónubátum. mbl.is/Eva Laufey

Hum­ar nýt­ur alltaf mik­illa vin­sælda og hér get­ur að líta sjúk­lega góða og ein­falda upp­skrift úr smiðju Evu Lauf­eyj­ar. Hvít­lauk­ur­inn er sí­vin­sælt krydd með hum­arn­um og pass­ar ákaf­lega vel við hann. Smjörið er svo nauðsyn­legt og saltið, pip­ar­inn og fersk stein­selj­an setja punkt­inn yfir i-ið. 

Heimasíða Evu Lauf­eyj­ar.

Smjörsteiktur humar á pönnu

Vista Prenta

SMJÖRSTEIKT­UR HUM­AR Á PÖNNU

  • 1 kg hum­ar í skel
  • 2 hvít­lauksrif
  • 1 msk. ólífu­olía
  • Salt og pip­ar
  • 1 tsk. sítr­ónupip­ar
  • 100 g smjör
  • Hand­fylli fersk stein­selja
  • 1 sítr­óna + fleiri sem meðlæti

Aðferð:

  1. Hreinsið humar­inn með því að klippa hann í tvennt, takið görn­ina úr og skolið vel und­ir köldu vatni.
  2. Þerrið humar­inn vel áður en þið steikið hann.
  3. Hitið ólífu­olíu á pönnu ásamt smá smjörklípu, saxið niður 2 hvít­lauksrif og steikið ör­stutt.
  4. Bætið humr­in­um út á pönn­una og kryddið til með salti, pip­ar og sítr­ónupip­ar. Saxið niður ferska stein­selju og sáldrið yfir ásamt því að kreista saf­ann úr hálfri sítr­ónu yfir.
  5. Bætið rest­inni af smjör­inu út á pönn­una og blandið öllu vel sam­an, það tek­ur mjög stutta stund að elda humar­inn eða um fimm mín­út­ur í mesta lagi.
  6. Berið humar­inn strax fram á pönn­unni með góðu brauði og sítr­ónu­bát­um.
Smjör, steinselja og sítróna.
Smjör, stein­selja og sítr­óna. mbl.is/​Eva Lauf­ey
Humarinn sést hér - tilbúinn á pönnuna.
Humar­inn sést hér - til­bú­inn á pönn­una. mbl.is/​Eva Lauf­ey
mbl.is/​Eva Lauf­ey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert