Trylltir ávaxta-kleinuhringir

Þetta er í raun ofureinfalt, bara svolítið dúllerí í eldhúsinu …
Þetta er í raun ofureinfalt, bara svolítið dúllerí í eldhúsinu og það er bara gaman annað slagið. mbl.is/awwsam

Þessi hérna upp­skrift er fyr­ir þá sem ætla sér stóra hluti hvað varðar skreyt­ing­ar í næsta barna­af­mæli. Þetta er í raun of­ur­ein­falt, bara svo­lítið dúlle­rí í eld­hús­inu, og hver hef­ur ekki gam­an af því annað slagið? Hér má stytta sér leið með því að kaupa til­búna kleinu­hringi og skreyta. En ef metnaður­inn er að fara með fólk má finna góm­sæta upp­skrift að mein­holl­um kleinu­hringj­um hér að neðan. Svo er bara að taka fram sprautu­pok­ana og þol­in­mæðina.

Trylltir ávaxta-kleinuhringir

Vista Prenta

Tryllt­ir ávaxta-kleinu­hring­ir

Það sem þarf til:

  • Góm­sæta kleinu­hringi
  • Súkkulaðihnappa til að bræða í græn­um, bleik­um, fjólu­blá­um, app­el­sínu­gul­um, gul­um, svört­um og hvít­um.
  • Skál­ar sem má setja í ör­bylgju­ofn
  • Sprautu­poka
  • Bök­un­ar­papp­ír
  • Ofnskúffu


Aðferð

  1. Setjið hvern lit af súkkulaði í sér skál. Bræðið súkkulaðið í ör­bylgju­ofni eða yfir vatnsbaði.

  2. Til að gera an­anasinn skal setja græna súkkulaðið í sprautu­poka og sprauta an­anaslaufi á bök­un­ar­papp­ír. Stingið bök­un­ar­papp­írn­um inn í ís­skáp og leyfið lauf­inu að storkna al­veg.

  3. Dýfið kleinu­hring í gula súkkulaðið og leyfið súkkulaðinu að harðna utan á kleinu­hringn­um. Takið hvítt súkkulaði og setjið í sprautu­poka, sprautið svo lín­ur á gula kleinu­hring­inn þvers og kruss með einni doppu inn á milli svo kleinu­hring­ur­inn líti út eins og an­an­as. Búið til smá gat á kleinu­hring­inn og stingið græna súkkulaði-lauf­inu í hliðina og þú ert kom­in(n) með an­ana­skleinu­hring.

  4. Til að gera vatns­mel­ónu-kleinu­hring skal dýfa kleinu­hring í bleikt súkkulaði. Leyfið súkkulaðinu að storkna al­veg. Notið þá sprautu­poka til að sprauta grænu súkkulaði í hring meðfram ytri brún kleinu­hrings­ins. Sprautið svo dopp­um af svörtu súkkulaði í bleika hlut­ann, þá lít­ur þetta út eins og vatns­mel­óna með fræj­um.

  5. Til að gera kíví-kleinu­hring skal dýfa kleinu­hring í hvítt súkkulaði. Leyfið súkkulaðinu að harðna al­ger­lega. Dýfið því næst bara toppi kleinu­hrings­ins í grænt súkkulaði. Takið svart súkkulaði og sprautið svört­um dopp­um á græna hlut­ann í hring meðfram hvítu rönd­inni og það lít­ur út eins og fræ.

  6. Til að gera dreka­ávöxt­inn skal dýfa kleinu­hring í fjólu­blátt súkkulaði og leyfa því að harðna. Dýfið svo miðju kleinu­hrings­ins í hvítt súkkulaði og sprautið svört­um dopp­um á hvíta hlut­ann.

  7. Fyr­ir app­el­sínu-kleinu­hring­inn skal dýfa öll­um kleinu­hringn­um í app­el­sínu­gult súkkulaði og leyfa því að harðna. Takið þá hvítt súkkulaði í sprautu­poka og sprautið hvíta þrí­hyrn­inga yfir kleinu­hring­inn sem líta út eins og app­el­sínu­bát­ar. Takið gult súkkulaði í sprautu­poka og sprautið grannri línu meðfram hvítu þrí­hyrn­ing­un­um.

  8. Leyfið öllu að storkna vel áður en kleinu­hring­irn­ir eru born­ir á borð.
Hérna má sjá hvernig ananasinn er undirbúinn. Munið bara að …
Hérna má sjá hvernig an­anasinn er und­ir­bú­inn. Munið bara að leyfa súkkulaðinu að storkna al­veg áður en þið stingið lauf­inu í kleinu­hring­inn. mbl.is/​aww­sam
Þessir sumarlegu kleinuhringir eiga eftir að slá í gegn í …
Þess­ir sum­ar­legu kleinu­hring­ir eiga eft­ir að slá í gegn í næsta barna­af­mæli. mbl.is/​aww­sam
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert