Ofureinföld og ótrúlega ljúffeng brownie með lakkríssmjörkremi

mbl.is/Linda Ben

Brownie með góðu smjörkremi er mögu­lega eitt það frá­bær­asta sem hægt er að fá sér í gogg­inn á góðum degi. Hér gef­ur að líta smjörkrem sem er með lakk­rís­dufti og sírópi frá sjálf­um Joh­an Bu­low og það er þess virði að prófa það.

Það er meist­ari Linda Ben sem á þessa upp­skrift og það þýðir að hún er betri á bragðið en flest­ir þorðu að láta sig dreyma um.

Mat­ar­bloggsíðu Lindu er hægt að nálg­ast HÉR.

Ofureinföld og ótrúlega ljúffeng brownie með lakkríssmjörkremi

Vista Prenta

Of­ur­ein­föld og ótrú­lega ljúf­feng brownie með lakk­ríss­mjörkremi

  • Þín upp­á­halds-brownie (ég elska Ghir­ar­delli úr Costco)
  • 300 g smjör
  • 500 g flór­syk­ur
  • 1 msk. fínt lakk­rís­duft frá Joh­an Bu­low
  • 1 msk. saltlakk­ríss­íróp frá Joh­an Bu­low
  • Nokkr­ir lakk­rís­bit­ar saxaðir fínt niður.

Aðferð:

  1. Bakið brownie-kök­una sam­kvæmt leiðbein­ing­um og látið hana kólna.
  2. Þeytið smjör of­ur­vel þangað til það verður létt og loft­mikið. Bætið þá flór­sykr­in­um út í og þeytið hann vel sam­an við þangað til kremið verður aft­ur of­ur­létt og loft­mikið. Bætið því næst bragðefn­un­um út í og þeytið aft­ur ótrú­lega vel sam­an við. Smyrjið krem­inu á kök­una, skerið lakk­rís fínt niður og dreifið yfir.
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert