Einfaldur pastaréttur með brakandi brokkolí og spínati

Einfaldur en góður pastaréttur sem klikkar ekki.
Einfaldur en góður pastaréttur sem klikkar ekki. mbl.is/Spis Bedre

Þegar mag­inn kall­ar á gott pasta og eitt­hvað hollt og grænt með, þá er þetta rétt­ur­inn fyr­ir þig. Of­ur­ein­fald­ur pasta­rétt­ur með brok­kolí og spínati ætti að seðja hungrið, toppað með nýrifn­um par­mes­an-osti. Þessi rétt­ur get­ur ekki klikkað. 

Ein­fald­ur pasta­rétt­ur með brok­kolí og spínati (fyr­ir 4)

  • 500 g brok­kolí
  • 400 g spaghettí
  • 1 egg
  • 1 stórt hvít­lauksrif
  • 200 g ferskt spínat
  • 50 g par­mes­an-ost­ur
  • 2 msk. ólífu­olía

Aðferð

  1. Skolið brok­kolíið og skerið það þvert í langa bita þannig að stilk­ur­inn sé með.
  2. Sjóðið spaghettíið í létt­söltuðu vatni í 10 mín­út­ur, eða þar til það nær „al dente“. Bætið þá brok­kolí­inu sam­an við rest­ina af eld­un­ar­tím­an­um á spaghettí­inu. Takið 1½ dl af vatn­inu frá og geymið þar til á eft­ir. Hellið rest­inni af vatn­inu úr pott­in­um.
  3. Pískið egg í skál og bætið við pressuðum hvít­lauk. Blandið pasta­vatn­inu sam­an við og hrærið létt þannig að allt bland­ist vel sam­an.
  4. Hellið eggja­blönd­unni í pott­inn með spaghettí­inu og brok­kolí­inu og blandið sam­an.
  5. Því næst bæt­ist spínatið við.
  6. Njótið meðan heitt er og stráið nýrifn­um par­mes­an yfir disk­inn með skvettu af góðri ólífu­olíu.  

Ein­fald­ur pasta­rétt­ur með brak­andi brok­kolí og spínati

Vista Prenta

%MCEPA­STEBIN%

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert