Grænmetisrétturinn sem unglingarnir elska

Einstaklega girnilegur grænmetisréttur.
Einstaklega girnilegur grænmetisréttur. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Græn­met­is­rétt­ir eiga oft ekki upp á pall­borðið hjá yngri kyn­slóðinni en þessi rétt­ur þótti svo góður að hann var kláraður upp til agna. 

Það er Svava Gunn­ars á Ljúf­meti & lekk­er­heit sem á heiður­inn að upp­skrift­inni sem hún mæl­ir heils­hug­ar með. 

Grænmetisrétturinn sem unglingarnir elska

Vista Prenta

Sæt­kart­öflu-, kjúk­linga­bauna- og spín­atkarrý – upp­skrift fyr­ir 6  (lít­il­lega breytt upp­skrift frá Jamie Oli­ver)

  • 2 msk. ólífu­olía
  • 2 rauðlauk­ar, sneidd­ir
  • 3 msk. karrýpa­ste (at­hugið að þau eru mis­sterk, ég var með frá Blue Dragon)
  • 1 rautt chili, fín­hakkað (takið fræ­in úr ef þið viljið ekki hafa rétt­inn sterk­an)
  • 3 cm bút­ur af engi­fer, rif­inn
  • hand­fylli af kóri­and­er, lauf­in týnd af og stöng­ull­inn hakkaður
  • 3 sæt­ar kart­öfl­ur, skorn­ar í 2 cm bita
  • 1 dós kjúk­linga­baun­ir (400 g), skolaðar
  • 1 dós hakkaðir tóm­at­ar (400 g)
  • 1 kjúk­linga­ten­ing­ur (eða græn­metisten­ing­ur)
  • 2 tsk. fiskisósa
  • 1 dós létt kó­kos­mjólk (400 g)
  • 400 g spínat (ég var með 200 g), skolað

Aðferð: 

Hitið ólífu­olíu í stór­um potti eða pönnu yfir miðlungs­há­um hita. Bætið rauðlauk og karrý sam­an við og steikið í 10 mín­út­ur, þar til lauk­ur­inn er orðin mjúk­ur. Bætið chilí, engi­fer, kóri­and­er­stöngl­um, sæt­um kart­öfl­um og kjúk­linga­baun­um í pott­inn og steikið í 5 mín­út­ur. Bætið þá tómöt­um, kjúk­linga­ten­ingi og 2 dl af vatni út í og látið suðuna koma upp. Lækkið hit­ann og látið sjóða við væg­an hita í 10-15 mín­út­ur und­ir loki. Takið lokið af og sjóðið áfram í 15-20 mín­út­ur, þar til kart­öfl­urn­ar eru soðnar og sós­an hef­ur þykknað. Hærið kó­kos­mjólk­inni og fiskisós­unni út í og sjóðið áfram í nokkr­ar mín­út­ur. Hrærið spínatinu út í og sjóðið í 2-3 mín­út­ur. Stráið kóri­and­erlauf­un­um yfir og berið fram með hrís­grjón­um.

Ef þið ætlið að frysta rétt­inn þá er best að láta hann kólna í pönn­unni áður en hann er sett­ur í box og fryst­ur. Rétt­ur­inn geym­ist í 3 mánuði í frysti.

mbl.is/​Svava Gunn­ars.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert