Geggjað grískt pasta

mbl.is/Yammie´s Noshery

Þessi rétt­ur er eins og klippt­ur út úr grísku sum­ar­æv­in­týri enda sam­ein­ar hann helstu perl­ur grískr­ar mat­ar­menn­ing­ar á ein­um disk.

Geggjað grískt pasta

Vista Prenta

Grísk­ur pasta­rétt­ur

Handa fjór­um

  • Nokkr­ar mat­skeiðar ólífu­olía
  • 1 tsk. þurrkað or­eg­anó
  • salt og pip­ar
  • tvær kjúk­linga­bring­ur (eða úr­beinuð læri)
  • 250 g spaghettí eða núðlur
  • 2 hvít­lauksrif, pressuð eða smátt söxuð
  • 1 lít­ill lauk­ur, sneidd­ur
  • 1 bolli ferskt spínat, laus­lega skorið
  • 1/​3 bolli svart­ar ólíf­ur, stein­laus­ar
  • 1/​3 bolli kirsu­berjatóm­at­ar
  • 1/​3 bolli niðursoðin þistil­hjörtu, gróft brytjuð
  • smá­veg­is af fersku or­eg­anó
  • feta­ost­ur

Aðferð:

  1. Hitið ol­í­una á pönnu, kryddið kjúk­linga­kjötið með salti, pip­ar og or­eg­anó.
  2. Steikið kjötið við meðal­hita og látið krauma und­ir loki í u.þ.b. 10 mín. á hvorri hlið eða þar til það er geg­neldað. Takið af pönn­unni og setjið til hliðar.
  3. Sjóðið spaghettí/​pasta sam­kvæmt leiðbein­ing­um á pakka.
  4. Bætið nokkr­um mat­skeiðum af ólífu­olíu á pönn­una (ef þarf), setjið lauk og hvít­lauk út í og brúnið laus­lega. Bætið síðan spínati, ólíf­um, kirsu­berjatómöt­um og þistil­hjört­um út í ásamt fersk­um or­eg­anó­lauf­um. Eldið þar til spínatið er orðið mjúkt og tóm­at­arn­ir farn­ir að springa.
  5. Skerið kjúk­ling­inn í þunn­ar sneiðar eða bita og bætið út á pönn­una.
  6. Látið vatnið renna af past­anu og dreifið yfir það smá­veg­is ólífu­olíu, salti, pip­ar og or­eg­anó.
  7. Hellið því síðan á pönn­una og blandið öllu sam­an.
  8. Dreifið feta­osti og smá­veg­is or­eg­anó yfir rétt­inn og berið fram.
mbl.is/​Yammie´s Nos­hery
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert