Salat sem engan svíkur - rucola og bakaðir tómatar

Ofnbakaðir tómatar og rucola svíkur engan.
Ofnbakaðir tómatar og rucola svíkur engan. mbl.is/Valdemarsro

Þetta sal­at lít­ur ekki bara vel út því það er líka ómót­stæðilega gott. Ofn­bakaðir tóm­at­ar eru hrein dá­semd og eru topp­ur­inn á öllu sem þeir koma ná­lægt. Það má einnig gæða sér á þessu sal­ati með þurrkuðum ávöxt­um, grilluðum fer­skj­um, epl­um eða per­um – fer í raun eft­ir því hvað árstíðirn­ar eru að gefa okk­ur hverju sinni.

Salat sem engan svíkur - rucola og bakaðir tómatar

Vista Prenta

Sal­at með rucola og bökuðum tómöt­um

Prenta
  • 125 g rucola
  • Hand­fylli ferskt spínat
  • 200 g litl­ir sæt­ir tóm­at­ar
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 3 hvít­lauksrif, grófsaxað
  • Salt og pip­ar
  • ½ dl furu­hnet­ur

Dress­ing:

  • 3 msk. ólífu­olía
  • 1 msk. epla­e­dik
  • 1 tsk. dijon-sinn­ep
  • 1 tsk. hun­ang

Aðferð:

  1. Skerið tóm­at­ana til helm­inga og leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  2. Dreifið söxuðum hvít­laukn­um yfir, hellið ólífu­olíu og saltið og piprið. Það má einnig leggja rós­marín eða tímj­an­grein­ar á bök­un­ar­plöt­una fyr­ir þá sem vilja auka krydd á tóm­at­ana.
  3. Bakið á lág­um hita, 100-125° í 1½ til 2 tíma.
  4. Ristið furu­hnet­urn­ar á þurri pönnu, þar til þær fara að taka lit.
  5. Veltið rucola og spínatinu upp úr dress­ing­unni og setjið á fat. Dreifið því næst tómöt­un­um og hnet­un­um yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert