Settu kjúkling í kókos-karrý á matseðil vikunnar og það má búast við því að allir við matarborðið verði með bros á vör. Hér kemur ein girnileg uppskrift sem er þess verð að prófa.
Kjúklingur í kókos-karrý
- 1 heill kjúklingur
- Salt og pipar
- 1 msk kókosolía til að steikja upp úr
- 2 litlir laukar
- 1 cm af fersku engifer
- 3 stórir hvítlaukar
- 2 gulrætur
- 2 rauðar papríkur
- 2 msk karrý
- 2 dósir af kókosmjólk
- Safi úr ½ lime
- 4 dl hrísgrjón
Berið fram með:
- 1 epli
- 1 rautt chili
- ½ lime
- Handfylli af fersku kóríander
- Ristaðar kókosflögur
Aðferð:
- Klippið kjúklinginn niður og kryddið með salti og pipar. Brúnið kjúklinginn á stórri pönnu upp úr kókosolíu.
- Saxið laukinn fínt og rífið niður engifer og hvítlauk. Leggið kjúklinginn til hliðar og steikið lauk, engifer og hvítlauk upp úr feitinni á pönnunni þar til laukurinn er tilbúinn.
- Skrælið gulrætur og skerið í teninga. Skerið papríkur í skífur. Blandið gulrótum og papríkum upp úr karrý og steikið á pönnunni. Bætið þá kókosmjólkinni út í. Því næst kemur kjúklingurinn á pönnuna og rétturinn er látinn malla í 30 mínútur. Smakkið til með lime safa, salti og pipar.
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Skerið eplið í litla teninga. Hreinsið chili og skerið í skífur, skerið einnig lime í skífur. Berið réttinn fram með hrísgrjónum, eplabitum, chili, lime, kóríander og kókosflögum.