Grillaður hamborgari með þrenns konar ostum

Það er fátt betra en bráðinn ostur á glóðuðum borgurum.
Það er fátt betra en bráðinn ostur á glóðuðum borgurum. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Það er fátt betra en grillaður ham­borg­ari nema ef vera skyldi grillaður ham­borg­ari löðrandi í dá­semd­ar ost­um. Hvað er hægt að biðja frem­ur um? 

Hér galdr­ar Ragn­ar fram geggjaðan borg­ara þar sem hann not­ar havarti, chedd­ar og ís­búa. Betra ger­ist það vart!

Mat­ar­blogg Ragn­ars er hægt að nálg­ast HÉR.

Grillaður hamborgari með þrenns konar ostum

Vista Prenta

Safa­rík­ur þríosta sveita­borg­ari með stökk­um heima­frönsk­um

Ég sótti nauta­hakkið í Kjöt­höll­ina og fékk þau til að hakka fyr­ir mig nautaframpart og blanda því sam­an við nautafitu til að fá full­komið hlut­fall á milli kjöts og fitu. Að mínu mati (og flestra annarra) er best að hafa 80 pró­sent kjöt á móti 20 pró­sent fitu. 

Hrá­efna­listi fyr­ir 6 manns 

  • 800 g nauta­hakk
  • salt og pip­ar
  • tóm­at­ar
  • sal­at
  • pæklaðar ag­úrk­ur
  • dji­on sinn­ep
  • maj­ónes

Nokkr­ar sneiðar af:

  • Havarti
  • Chedd­ar 
  • Ísbúa
  • 600 g kart­öfl­ur
  • salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Mótaði ham­borg­ar­ana í 120-150 g boll­ur og flatti þær vand­lega út.
  2. Ég notaði nokkr­ar teg­und­ir af osti. Fólk fékk auðvitað að velja sjálft hvaða osta það vildi hafa á ham­borg­ar­ann.
  3. Hver ost­ur hef­ur sína eig­in­leika. Ég notaði að sjálf­sögðu alla ost­ana á minn borg­ara.
  4. Til að gera elda­mennsk­una auðveld­ari út­bjó ég ostsneiðarn­ar á disk þannig að þær voru til­bún­ar þegar borg­ar­an­um var snúið.
  5. Ham­borg­ar­inn var eldaður á blúss­heitu grilli. Ekki gleyma að salta og pipra.
  6. Þegar ham­borg­ar­an­um var snúið tyllti ég ost­in­um ofan á þannig að hann fengi að bráðna yfir kjötið.
  7. Það er ágætt að leyfa ham­borg­ar­an­um að hvíla í nokkr­ar mín­út­ur á meðan brauðið er ristað á grill­inu. Svo er bara að byggja upp ham­borg­ar­ann; smyrja brauðið með dji­on og maj­ónesi, tylla græn­met­inu bæði und­ir og ofan á – og byrja að hlakka til.
  8. Kart­öfl­urn­ar voru skorn­ar í bita og steikt­ar í heitri olíu þangað til þær voru stökk­ar að utan, gull­in­brún­ar og mjúk­ar að inn­an.
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Osturinn tilbúinn á borgarana.
Ost­ur­inn til­bú­inn á borg­ar­ana. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert