Á að poppa yfir góðri ræmu í kvöld? Hér er uppskrift að allt öðru en örbylgjupoppi. Hnetusmjör og súkkulaði eru undirstaðan að öðruvísi útgáfu af poppi sem þú hefur aldrei smakkað.
Poppkorn með hnetusmjöri og súkkulaði
- 1 dl poppmaís
- 1 msk. kókosolía
- 2 msk. mjúkt hnetusmjör
- 50 g dökkt súkkulaði
- Salt
Aðferð:
- Hitið stóran pott með loki á miðlungs/háum hita. Setjið kókosolíuna í pottinn og nokkrar (kannski fjórar) maísbaunir, ekki allar, til að athuga hvort potturinn sé orðinn nægilega heitur. Munið að setja lokið á pottinn svo baunirnar poppist ekki upp úr.
- Ef potturinn er orðinn nægilega heitur, takið hann þá af hellunni og bíðið í 30 sekúndur.
- Setjið restina af maískornunum í pottinn og aftur á heita helluna. Eftir sirka eina mínútu ætti maísinn að byrja poppast.
- Þegar nokkrar sekúndur eru á milli poppa, slökkvið þá undir og takið pottinn af hellunni.
- Látið grófhakkað súkkulaðið og hnetusmjörið í pottinn og hristið til með lokinu á, þar til allt hefur blandast ágætlega saman.
- Dreifið salti yfir í lokin og berið fram.