Kasólétt í stríði við ófyrirleitna rifsberjaþjófa

Rifsberjadrottningin Tobba Marínós ásamt sinni eitursnjöllu dóttur, Regínu Birkis.
Rifsberjadrottningin Tobba Marínós ásamt sinni eitursnjöllu dóttur, Regínu Birkis. mbl.is/Facebook

Ein fyndn­asta fram­halds­saga síðari ára á sér stað á Face­book þessa stund­ina þar sem fyrr­ver­andi rit­stjóri Mat­ar­vefjar­ins, hin eina sanna Tobba Marínós, heyr grimmi­legt stríð við ófyr­ir­leitna þjófa sem ræna rifs­berj­un­um henn­ar. 

Tobba seg­ir far­ir sín­ar ekki slétt­ar og er búin að reyna ým­is­legt í stríðinu:

„Eft­ir hat­ramma bar­áttu við spik­feita siðblinda spör­fugla miðbæj­ar­ins stóð ég í míg­andi rign­ingu á nátt­föt­un­um og klippti rauðustu ber­in af rifs­berj­ar­unn­an­um í morg­un. Þá hafði ég reynt öll helstu trix­in í bók­inni til að losna við berjaþjóf­anna. Álpapp­írs­lauf­urn­ar virkuðu í tvo daga og ég ætla ekki að kaupa net yfir runn­ana þar sem fugl­arn­ir eiga það til að festa sig í þeim eða skríða und­ir netið. Morð er ekki á dag­skrá að sinni. Jæja. Nú spyr rifs­berja­bar­áttu­kon­an er ein­hver séns á að græn óþroskuð rifs­ber nái að þrosk­ast inn­an­dyra?“

Góðu ráðin hafa ekki látið á sér standa en meðal ann­ars hef­ur verið stungið upp á því að Tobba fái sér kött (sem er af­leit hug­mynd), að hún kasti gróður­dúk yfir runn­ana og þar fram eft­ir göt­un­um en besta ráðið er sjálfsagt frá Ólátag­arði en þar á bæ segja sér­fræðing­arn­ir að besta ráðið sé að bjóða upp á lúx­us­hafra­graut á morgn­ana. Þá verði fugl­arn­ir sadd­ir og sæl­ir og láti ber­in í friði. 

Mat­ar­vef­ur­inn fylg­ist að sjálf­sögðu spennt­ur með þess­ari æsispenn­andi fram­halds­sögu. Mun Tobba hafa sig­ur eða verða ber­in öll étin? 

Hér gef­ur að líta sult­una sem Tobba hyggst búa til:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert