Einfalt en ómótstæðilegt pasta

00:00
00:00

Þetta er það sem kall­ast neglu-pasta þar sem það get­ur ekki klikkað. Það inni­held­ur heil­an haug af par­mes­an-osti og fersku basil, en punkt­ur­inn yfir i-ið eru rækj­urn­ar en fátt er betra en pasta með rækj­um – hvað þá ef þær telj­ast ris­arækj­ur. 

Einfalt en ómótstæðilegt pasta

Vista Prenta

Sítr­ónu-ris­arækju­spa­gettí

  • 250 g De Cecco spa­gettí
  • 400 g litl­ar tígris­rækj­ur
  • salt og pip­ar
  • 1 dl olía
  • börk­ur af 1 sítr­ónu
  • safi úr 2 sítr­ón­um
  • ½ bolli ólífu­olía
  • ¾ rif­inn par­mes­an-ost­ur
  • ½ bolli pasta­soð
  • ferskt basil

Aðferð:

  1. Spa­gettíið er soðið í miklu vatni þangað til það er orðið „al dente“, það er þegar spa­gettíið er næst­um því til­búið, smá stíft enn þá.
  2. Ris­arækj­urn­ar eru kryddaðar með salti og pip­ar og steikt­ar á pönnu þangað til þær eru bleik­ar í gegn.
  3. Í stóra fal­lega skál rífið þið börk­inn af 1 sítr­ónu og kreistið svo saf­ann úr 2 sítr­ón­um.
  4. Bætið ½ bolla af ólífu­olíu í skál­ina ásamt par­mes­an-ost­in­um, hrærið sam­an.
  5. Setjið spa­gettíið í skál­ina ásamt ½ bolla af pasta­soði, hrærið sam­an.
  6. Setjið ferskt basil á pastað eft­ir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert