Girnilegasta kjúklingasalatið á Netinu í dag

Girnilegur rósmarínkjúklingur með beikoni og avocado-salati.
Girnilegur rósmarínkjúklingur með beikoni og avocado-salati. mbl.is/HowSweetEats

Þetta má ekki fram hjá þér fara! Kjúk­linga­sal­at með bei­kon og avoca­do, toppað með dress­ingu sem fær þig til að gleyma.

Girnilegasta kjúklingasalatið á Netinu í dag

Vista Prenta

Rós­marínkjúk­ling­ur með bei­koni og avoca­do-sal­ati

Prenta
  • 4 sneiðar bei­kon
  • 2 kjúk­linga­bring­ur
  • Salt og pip­ar
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 2 msk. ferskt rós­marín
  • Sal­at að eig­in vali
  • Rucola
  • 1 bolli cherry-tóm­at­ar, skorn­ir til helm­inga
  • 1 stór avoca­do, skor­inn í þunn­ar sneiðar

Rós­marín-dress­ing:

  • 2 tsk. dijon-sinn­ep
  • ¼ bolli ólífu­olía
  • ¼ bolli rauðvín­se­dik
  • 1 tsk. ferskt rós­marín
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Rós­marín-dress­ing: Pískið sam­an sinn­epi, olíu og rauðvín­se­diki. Blandið rós­marín ásamt salti og pip­ar út í og smakkið til. 
  2. Hitið pönnu á meðal­hita og steikið bei­konið. Takið bei­konið af pönn­unni, leggið á eld­húspapp­ír og leyfið fit­unni að leka af.
  3. Kryddið kjúk­ling­inn með salti, pip­ar og rós­marín. Eldið bring­urn­ar á sömu pönnu og bei­konið þar til hann er fulleldaður.
  4. Blandið sam­an sal­at­inu, skerið kjúk­ling­inn í sneiðar ásamt bei­koni og avoca­do. Dreifið rós­marín-dress­ing­unni yfir og berið fram.
mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert