Grillað naan-brauð með parmaskinku og öðrum yndisauka

mbl.is/Ditte Ingemann

Það er fátt sem jafn­ast á við grillað nan-brauð með gúrme parma­skinku og osti. Þetta er al­veg upp­lagt þegar lít­ill tími gefst til að elda kvöld­mat og er svo gletti­lega bragðgott.

Grillað naan-brauð með parmaskinku og öðrum yndisauka

Vista Prenta

Grillað naan-brauð með fíkj­um, blá­myglu­osti og parma­skinku (fyr­ir 4)

  • 8 lít­il eða 4 stór naan-brauð
  • 150 g mjúk­ur blá­myglu­ost­ur
  • 6 fíkj­ur
  • 200 g parma­skinka
  • 4 stilk­ar ferskt rós­marín
  • Ólífu­olía
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Grillið naan-brauðin í 1-2 mín­út­ur á hvorri hlið. Takið þau af grill­inu og setjið ost, fíkju­skíf­ur, parma­skinku og hakkað rós­marín á brauðin og leggið aft­ur á grillið í sirka 3-4 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn hef­ur bráðnað.
  2. Dreypið ör­litlu af ólífu­olíu yfir brauðin áður en þau eru bor­in fram og smá­veg­is af salti og pip­ar. Ferskt sal­at er frá­bært meðlæti með þess­um rétti.
Naan-brauð eru brjálæðislega góð á grillið með parmaskinku og blámygluosti.
Naan-brauð eru brjálæðis­lega góð á grillið með parma­skinku og blá­myglu­osti. mbl.is/​Ditte Ingemann
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert