Gerðu þinn eigin thai-skyndibita heima með einfaldri en bragðgóðri uppskrift. Hér er réttur með heilhveiti núðlum, kjúklingi og kasjúhnetum sem setja alltaf punktinn yfir i-ið, hvar sem þær lenda.
Einfaldur thai-réttur með kjúklingi og kasjúhnetum (fyrir 2)
- 1 skallotlaukur
- 6 skífur af engifer
- 1 stöng sítrónugras
- 4 tsk. ólífuolía
- 2 tsk. karrý
- 2 dl grænmetiskraftur
- 2 kjúklingabringur
- ½ eggaldin
- 2 msk. fiskisósa
- 2 tsk. ostrusósa
- 2 msk. sojasósa
- 4 vorlaukar
- 1½ dl kókosmjólk
- Blaðkál eða ½ hvítkál
- 14 kasjúhnetur
- 70 g heilhveitinúðlur
- Svartur pipar
- 2 greinar af fersku kóríander
Aðferð:
- Skerið lauk, engifer og sítrónugras fínt og steikið upp úr ólífuolíu í potti, þar til það verður mjúkt. Bætið þá karrý og grænmetiskrafti við.
- Skerið kjúklinginn í þunnar skífur og eggaldin í teninga og setjið í pottinn ásamt fiski-, ostru- og sojasósu.
- Skerið vorlaukinn í skífur og bætið í pottinn ásamt kókosmjólkinni. Hrærið í og leyfið að malla.
- Skerið kálið í breiða strimla og setjið út í pottinn.
- Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum, hellið vatninu af og bætið núðlunum í pottinn.
- Ristið hneturnar á þurri pönnu og því næst út í réttinn.
- Smakkið til með fiskisósu og pipar og fersku kryddjurtunum.