„Pulled chicken“ sem allir elska

Rifinn kjúlli að hætti Berglindar Guðmunds.
Rifinn kjúlli að hætti Berglindar Guðmunds. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Þetta er ein af þess­um vand­ræðal­ega skot­heldu upp­skrift­um sem all­ir elska. Og það er gott, við elsk­um upp­skrift­ir sem eru allra þar sem það er fátt meira svekkj­andi en barn sem brest­ur í grát í upp­hafi máltíðar þar sem mat­ur­inn sé ekki góður. Ég er nokkuð viss um að Berg­lind lend­ir aldrei í þessu!

Mat­ar­blogg Berg­lind­ar – Gul­ur, rauður, grænn og salt! er hægt að nálg­ast HÉR.

„Pulled chicken“ sem allir elska

Vista Prenta

„Pul­led chicken“

Fyr­ir 4

  • 600 g kjúk­linga­bring­ur, t.d. frá Rose Poul­try
  • 4 dl vatn
  • 1 msk. kjúk­lingakraft­ur, t.d. frá Oscars
  • 3 tsk. reykt paprika
  • 1 tsk. cum­in (ath ekki kúmen)
  • 1/​2 tsk. kórí­and­erkrydd
  • 1/​2 tsk. cayenne-pip­ar
  • salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Hellið vatni í pott og hitið. Látið kjúk­lingakraft­inn út í. Þegar ten­ing­ur­inn er upp­leyst­ur bætið þá hinum krydd­un­um sam­an við.
  2. Skerið kjúk­linga­bring­urn­ar í tvennt langs­um og setjið út í pott­inn. Látið lok á pott­inn og leyfið að malla í 25 mín­út­ur.
  3. Takið kjúk­ling­inn úr pott­in­um og rífið hann niður með tveim­ur göffl­um.
  4. Berið fram í ham­borg­ara­brauði, vefju, með sal­ati eða því sem hug­ur­inn girn­ist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert