Reddaðu heimilisskipulaginu með þessari lausn

Til að koma skipulagi á skúffurnar er ágæt leið að …
Til að koma skipulagi á skúffurnar er ágæt leið að byrja á því að merkja ílátin. mbl.is/Valdemarsro

Það jafn­ast fátt á við gott skipu­lag í skúff­un­um sem auðvelda manni að finna það sem maður leit­ar að. Það er eitt­hvað við það að sjá ílát sem raðast vel sam­an, eða allt með eins merking­um – eða er það kannski fjar­læg­ur draum­ur?

Til þess að koma sér í gang er það eina sem þú þarft að gera að trítla í næstu fönd­ur­búð eða bóka­búð og kaupa límmiðapapp­ír í stærðinni A4. Því næst prent­arðu út merkimiðana HÉR eða HÉR – lím­ir á ílát­in og merk­ir. Svo ein­falt og ágæt­issunnu­dags­verk­efni fyr­ir alla fjöl­skyld­una.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert