Ketó-lax með spínatsmjöri og fersku steiktu rósakáli

Það er eng­inn ann­ar en Gunn­ar Már Sig­fús­son sem á þessa upp­skrift en hann seg­ir að það sé vart hægt að finna ketóvænni rétt. „Hér höf­um við alls kyns teg­und­ir af fitu bæði í prótein­hlut­an­um og meðlæt­inu. Ferskt rósa­kál er orðið heit­asta „áður hataða“ græn­metið í dag og bragðast guðdóm­lega með ost­in­um, smjöri og klípu af salti,“ seg­ir Gunn­ar um þenn­an frá­bæra rétt.

Ketó-lax með spínatsmjöri og fersku steiktu rósakáli

Vista Prenta

Ketó-lax með spínats­mjöri og fersku steiktu rósa­káli

  • Upp­skrift fyr­ir: 2
  • Eld­un­ar­tími: 15 mín.

Hrá­efn­in

  • 400 gr. fersk­ur lax
  • salt og svart­ur gróf­ur pip­ar
  • 30 gr. smjör (mjúkt)
  • 1 lúka ferskt spínat
  • 300 gr. ferskt rósa­kál
  • smjör
  • 2 msk. fersk­ur parmigiano

Það sem þú þarft að hafa við hend­ina er steikarp­anna, bretti og hníf­ur

Stilltu ofn­inn á 160° og yf­ir­hita

Aðferð

1. Byrjaðu á að skera lax­inn í tvo jafna hluta og steiktu hann á vel heitri pönnu í olíu og kryddaðu með salti og pip­ar eða kryddi að eig­in vali. Settu lax­inn í eld­fast mót og inn í ofn í 10 mín­út­ur og snúðu þér að meðlæt­inu.

2. Skerðu rósa­kálið í fjóra hluta og steiktu á vel heitri pönnu í 1 góðri mat­skeið af smjöri. Þegar það hef­ur fengið góðan lit lækkaðu þá hit­ann, kryddaðu með salti og leyfðu því að malla áfram á væg­um hita þar til lax­inn er til­bú­inn.

3. Saxaðu spínatið mjög smátt og hrærðu sam­an við smjörið. Settu í kæli þar til allt er klárt.

4. Færðu rósa­kálið á disk­inn og raspaðu fersk­an Parmigiano yfir. Settu lax­inn upp á disk­inn, krydds­mjörið yfir og njóttu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert