Sous vide steik sem er löðrandi í ostum

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Það er form­lega skíta­veður framund­an um næst­um allt land á næstu dög­um og þá má maður gera vel við sig í mat og drykk. Það má líka færa sann­fær­andi rök fyr­ir því að þetta sé ketó máltíð og þá geta all­ir verið glaðir. 

Hér höf­um við sous vide svína­lund­ir sem að Ragn­ar Freyr Ingvars­son setti sam­an en hann er ákaf­lega mik­ill ostamaður og má segja að upp­skrift­in sé löðrandi í ost­um. 

Akkúrrat það sem við þurf­um...

Heimasíðu Ragn­ars - Lækn­ir­inn í eld­hús­inu - er hægt að nálg­ast HÉR.

Sous vide steik sem er löðrandi í ostum

Vista Prenta

Seiðandi svína­lund­ir sous vide með gljáðum per­um, bökuðum osti og splunku­nýj­um ís­lensk­um kart­öfl­um

Hrá­efna­listi fyr­ir 10 manns
2 kg svína­lund­ir
salt og pip­ar
jóm­frúarol­ía
10 per­ur
50 g smjör
2 msk. hun­ang
hand­fylli val­hnet­ur
2 msk. bal­sa­mik edik
1 gul­lost­ur
1 stóri dím­on
2 hvít­lauksrif
2 msk. hvít­vín
2 msk. hvít­laukol­ía
salt og pip­ar
1 kg nýj­ar ís­lensk­ar kart­öfl­ur
hand­fylli pæklaðar gúrk­ur (gherkins) 
Aðferð:
Ég byrjaði á því að setja Vouto sous vide tækið í gang. Það er gam­an frá því að segja að sala þessa tæk­is gekk vel fyr­ir jól­in í fyrra og í sam­vinnu við Margt smátt mun­um við koma með fleiri vör­ur á markað fyr­ir jól­in sem verða í boði sem jóla­gjaf­ir til fyr­ir­tækja. Við ætl­um að sjálf­sögðu að halda áfram að bjóða upp á þetta tæki, en verðum líka með loft­tæm­ing­ar­tæki, svuntu, hníf og skurðarbretti und­ir mínu merki og Vuoto. Segi meira frá því þegar nær dreg­ur. 
Ég stillti tækið á 62 gráður og þannig fást svína­lund­irn­ar lunga­mjúk­ar og góðar. Ég pipraði þær áður en ég setti þær í poka, loft­tæmdi og setti svo í vatnsbaðið í 90 mín­út­ur. 
Ég notaði upp­á­hald­sost­ana mína í þessa upp­skrift, Stóra Dím­on sem er ljúf­feng­ur blá­myglu­ost­ur ...

 ... og til að hafa smá jafn­vægi þá notaði ég líka einn gul­lost.

Ég lagði þá í eld­fast mót sem ég hafði penslað með hvít­lauk­sol­íu. Næst var að gata þá vand­lega með gaffli. 
Því næst hellti ég mat­skeið af hvít­víni yfir hvorn ost, tyllti svo hvít­lauksrifi ofan á. Svo var auðvitað saltað og piprað. Setti svo álp­app­ír ofan á ost­inn og bakaði við 160 gráður í for­hituðum ofni í 40 mín­út­ur. 
Ost­ur­inn bráðnaði sam­an í dá­sam­lega ilm­andi og seiðandi ostasósu.

Þá var að und­ir­búa per­urn­ar. Ég bræddi fyrst smjörið og leysti svo hun­angið upp í heitu smjör­inu. Bætti svo bal­sa­mik ed­ik­inu sam­an við og lét krauma við lág­an hita í nokkr­ar mín­út­ur. 

Þá bætti ég við hand­fylli af gróf­lega söxuðum val­hnet­um og lét krauma í eina til tvær mín­út­ur í viðbót. 

Næst skref var að flysja, helm­inga og kjarn­hreinsa fimm per­ur og leggja í eld­fast mót. Þær voru svo bakaðar í 35 mín­út­ur í 160 gráða heit­um ofni. 

Svína­lund­irn­ar voru svo tekn­ar upp úr vatnsbaðinu, penslaðar með jóm­frúarol­íu, saltaðar og pipraðar og svo rétt brúnaðar að utan á blúss­heitu grilli. 
Svo var bara að sneiða lund­irn­ar niður ofan í mann­skap­inn.  
Per­urn­ar lagði ég á beð af fersku ís­lensku sal­ati. 

Svo var bara að njóta. Það er erfitt að lýsa því hversu ljúf­feng­ar nýj­ar ís­lensk­ar kart­öfl­ur eru þegar þeim er velt upp úr bökuðum osti. Hreint út sagt stór­kost­legt.

mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert