Gómsætt focaccia með tómötum, rauðlauk og rósmaríni

Gómsætt og girnilegt focaccia sem verður að prófast.
Gómsætt og girnilegt focaccia sem verður að prófast. mbl.is/Line Falck

Þetta of­urg­irni­lega focaccia-brauð er full­komið nýbakað með góðu sal­ati. Nú eða sem óvænt­ur glaðning­ur í róm­an­tískri skóg­ar­ferð sem okk­ur dagd­reym­ir um.

Gómsætt focaccia með tómötum, rauðlauk og rósmaríni

Vista Prenta

Focaccia með tómöt­um, rauðlauk og rós­maríni

  • 25 g þurr­ger
  • 5 dl volgt vatn
  • 100 g heil­hveiti
  • 400 g hveiti
  • 2 tsk. salt
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 200 g litl­ir tóm­at­ar, í mis­mun­andi lit­um
  • ½ rauðlauk­ur
  • 4-5 rós­marín grein­ar
  • 1 tsk. salt­flög­ur
  • Bök­un­ar­mót 25x25 cm

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í volgu vatni í skál. Bætið hveit­un­um við og saltið. Hrærið í deig­inu með gaffli, ekki hnoða það. Setjið plast­filmu yfir skál­ina og látið degið taka sig við stofu­hita í sirka 1 tíma.
  2. Hitið ofn­inn á 220°. Klæðið bök­un­ar­mótið með bök­un­ar­papp­ír. Skrapið deigið úr skál­inni yfir í bök­un­ar­mótið. Potið í deigið með fingr­un­um svo það fari út í alla kanta. Hellið ólífu­olíu yfir deigið og búið til litl­ar hol­ur með fingr­un­um þannig að olí­an dreifi sér. Því næst koma tóm­atatarn­ir í deigið, fínt að setja þá í hol­urn­ar og ýta þeim létti­lega niður. Skerið rauðlauk­inn í þunn­ar skíf­ur og dreifið yfir brauðið ásamt rós­maríni. Stráið flögu­salt­inu yfir og leggið rakt viska­stykki yfir deigið. Látið hef­ast í 1 tíma.
  3. Bakið brauðið í ofni í 20-25 mín­út­ur þar til það hef­ur tekið gyllt­an lit og er bakað í gegn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert