Ebba gefur góð ráð

Eft­ir að hafa kennt okk­ur að næra ung­börn­in okk­ar með al­menni­leg­um mat, dansað frá sér allt vit á öld­um ljósvak­ans og al­mennt verið hún sjálf í öllu sem hún ger­ir mæt­ir frú Ebba í yf­ir­heyrslu og eys úr visku­brunni sín­um enda er hún bet­ur að sér en flest­ir um hvað sé best að borða, hvernig og af hverju. Að auki er hún svo skemmti­leg að það er ekki annað hægt en að dást að kraft­in­um í henni enda erum við öll inn við beinið bullandi Ebbu-aðdá­end­ur.

Holl­ráð Ebbu

Eins og all­ir vita, en maður stund­um gleym­ir, þá erum við öll afar mis­jöfn. Það hent­ar ekki eitt öll­um. Til dæm­is eiga sum­ir erfitt með að borða mikið af kol­vetn­um, eins og hvers kyns mjöli (hveiti til dæm­is) og sykri. Marg­ir finna fyr­ir sleni og þreytu, haus­verk jafn­vel, ef þeir borða kol­vetnarík­an morg­un­verð sem dæmi, aðrir tala um að þeir eigi erfitt með að borða hæfi­lega skammta þegar kol­vetni eru ann­ars veg­ar (eins og brauð, sæta­brauð og fleira í þeim dúr). Enn aðrir þola illa glút­en sem finnst í hveiti, spelti og rúgi sem dæmi. Maga­verk­ir og harðlífi eru dæmi um van­líðan hjá þeim sem þola illa glút­en en list­inn er lengri. Auðvelt að skoða ein­kenni glút­enóþols og of­næm­is á net­inu. Gott þó að fara var­lega í að hafa áhyggj­ur en hver sem er get­ur prófað að sleppa glút­eni í um þrjár vik­ur til að at­huga hvort líðan batni. Ekk­ert að því.

Þannig hent­ar sum­um miklu bet­ur að borða meira prótein og meira af góðri fitu og minnka kol­vetni á móti. Sér í lagi ein­föld kol­vetni.

Hvað mig sjálfa varðar finnst mér auðveld­ara að borða kol­vetni í hófi og njóta þeirra þegar ég borða nóg af góðu próteini og góðri fitu. Hvoru­tveggja mett­ar og gleður, jafn­ar blóðsyk­ur og gef­ur jafna og góða orku. Þá er miklu auðveld­ara að borða sæt­indi, án þess að líða mjög illa af þeim (minni blóðsyk­ur­strufl­an­ir).

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert