Ídýfan sem kemst í sögubækurnar

mbl.is/Yammie´s Noshery (com)

Til er það sel­skapssn­arl sem þykir svo vel heppnað að góðar lík­ur eru tald­ar á að um það verði ort ljóð, tekn­ar af því mynd­ir og mögu­lega muni ein­hver mitt­is­mál heyra sög­unni til. Hér erum við að tala um ídýfu með spínati og þistil­hjört­um og hún er al­veg hreint ... dá­sam­leg!

Ídýfan sem kemst í sögubækurnar

Vista Prenta

Ídýfa úr spínati og þistil­hjört­um – namm­inamm

  • 1 bolli gróft söxuð þistil­hjörtu
  • 1 bolli saxað spínat (ferskt eða frosið)
  • 3 hvít­lauksrif (pressuð)
  • ½ bolli saxaður lauk­ur
  • ½ bolli sýrður rjómi
  • 120 g sýrður rjómi
  • 2 msk mjólk
  • 1 bolli rif­inn mozzar­ella­ost­ur (og meira til að dreifa yfir)
  • ½ bolli rif­inn par­mesanost­ur
  • ½ tsk hvít­laukssalt
  • ¼ tsk ít­alskt krydd (Itali­an Sea­son­ing)
  • 1/​8 tsk pip­ar

Hitið ofn­inn í 200°C. Blandið öll­um inni­halds­efn­un­um sam­an, í sömu röð og þau eru tal­in upp, hrærið þar til bland­an er orðin sam­felld. Hellið í pæ­mót eða form (ca 20 cm í þver­mál). Dreifið auka mozzar­ella­osti yfir ef vill. Bakið í u.þ.b. hálf­tíma, eða þar til ídýf­an er orðin gull­in­brún og far­in að krauma í mót­inu. Setjið ofn­inn á grillstill­ingu um stund í lok­in ef ost­ur­inn er ekki orðinn nægi­lega bráðinn.
Berið fram með flög­um, salt­stöng­um, kex­kök­um, niður­skornu græn­meti eða hverju sem hug­ur­inn girn­ist.

mbl.is/​Yammie´s Nos­hery (com)
mbl.is/​Yammie´s Nos­hery (com)
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert