Heimagerður ís með súkkulaðilakkrískurli

00:00
00:00

Hér gef­ur að líta dá­semda­rís með öllu því nammi sem við elsk­um hvað heit­ast. Bara botn­inn er nóg til að æra óstögug­an en hann sam­an­stend­ur af eig­in­lega bara hraun­bit­um. Þetta er upp­skrift sem get­ur ekki klikkað og að auki fáið þið skot­helt kennslu­mynd­band með. Al­gjör snilld!

Heimagerður ís með súkkulaðilakkrískurli

Vista Prenta

Heima­gerður ís með súkkulaðilakk­rísk­urli

8-10 stk

Botn­inn:

  • 200 g Hraun­bit­ar frá Góu
  • 4 msk. smjör

Skerið Hraun­bit­ana niður til helm­inga og setjið í mat­vinnslu­vél. Malið bit­ana í vél­inni. Bætið smjöri út í og látið vél­ina vinna í 2-3 mín. Skiptið þessu í lít­il form, t.d. múffusíli­kon­form, og þjappið létt.

Ísinn:

  • 3 dl rjómi, léttþeytt­ur
  • 3 eggj­ar­auður
  • 3 msk. syk­ur
  • 1 poki Appolo-súkkulaðilakk­ríiskurl frá Góu
  • 2 dl súkkulaðirús­ín­ur frá Góu

Þeytið eggj­ar­auður og syk­ur sam­an þar til það er ljóst og krem­kennt. Bætið þeytt­um rjóma og Appolo-súkkulaðilakk­rísk­urli út í og vinnið sam­an með sleikju. Skiptið blönd­unni á milli formanna og jafnið yf­ir­borðið. Frystið. Berið fram með berj­um og súkkulaðirús­ín­um frá Góu.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert